Sameiginlegar

Svana Helen er fyrirmyndar frumkvöðull

1.10.2009

Valdir voru fjórir frumkvöðlar frá Íslandi, níu frá Danmörku og sjö frá Noregi, sem talið er að geti orðið fyrirmyndir annarra kvenna í þessum löndum í stofnun og rekstri fyrirtækja. Auk Svönu Helenar eru íslensku frumkvöðlarnir þær Halla Tómasdóttir og Kristín Pétursdóttir frá Auði Capital og Vilborg Einarsdóttir frá Mentor. Þess má geta að Svana Helen var sæmd heiðursmerki VFÍ í febrúar mánuði síðastliðnum.

Lagt var upp með ákveðnar forsendur fyrir vali frumkvöðlanna og var fremur leitað eftir konum sem stunduðu rekstur í „karllægu“ rekstrarumhverfi eins og upplýsingatækni, byggingatækni og öðrum hátæknigreinum, svo eitthvað sé nefnt. Rekstur sem bæri þar að auki í sér sköpun starfa og stuðlaði þar með að auknum hagvexti. Fyrsta verkefni þessara íslensku sendiherra, ásamt völdum konum frá öðrum Evrópulöndum, er að vera viðstaddir opnun þessa verkefnis í Svíþjóð, 5. október næstkomandi. Verkefnið mun taka tvö ár og munu kvenfrumkvöðlarnir taka þátt í ráðstefnum og fundum í sínu heimalandi þar sem þeir segja frá stofnun fyrirtækja sinna og miðla reynslu af rekstri þeirra.

 



Senda grein

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica