Vel heppnuð Kárahnjúkaferð
Við Hálslón.
Kárahnjúkavirkjun er stærsta einstaka mannvirkjaframkvæmd Íslandssögunnar og tóku framkvæmdirnar sex ár.
Unnið er að lokafrágangi.
Uppsett afl Kárahnjúkavirkjunar er 700 MW og orkugeta hennar er 4.600 GWst/ári. Með Kárahnjúkavirkjun eru virkjaðar í einni virkjun jökulárnar Jökulsá á Dal og Jökulsá í Fljótsdal, ásamt hliðarám á Hraunum þar austur af.
Við hverfilhjól.
Heildarkostnaður við virkjunina er metin á um 133 milljarða króna. Það er um 7% meira en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir. Frá því að virkjunin var tekin í notkun í nóvember 2007 hefur reksturinn gengið áfallalaust og reyndar er raforkuframleiðslan heldur meiri en ráð var fyrir gert. Mun það vega upp aukinn kostnað við framkvæmdirnar.
