Sameiginlegar

Jöklar á Íslandi - Tilboð

9.12.2009

Jöklar á Íslandi er mikið rit byggt á áratuga rannsóknum Helga og samstarfsmanna hans við Háskóla Íslands og víðar. Bókin lýsir jöklum landsins og sambúð þjóðarinnar við þá frá upphafi byggðar til okkar daga, hvernig jöklar hafa mótað landið og eytt. Bókin rekur sögu þekkingaröflunar og skilnings á jöklum, frá því fyrst var farið að kanna þá fram til nútímarannsókna. Rakin eru spor löngu horfinna jökulbreiða, hulunni svipt af landinu undir jöklum Íslands og greint frá líklegri framtíð þeirra.

Jöklar á Íslandi er búin fjölbreytilegu myndefni; ljósmyndum, skýringarmyndum, landakortum, gervihnattamyndum og þrívíðum kortum af landslagi undir jöklum.



Senda grein

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica