VFÍ er stofnaðili að Endurmenntun HÍ.

VFÍ vill stuðla að endur- og símenntun félagsmanna, þá helst með því að stuðla að nægu framboði námskeiða fyrir verkfræðinga og tæknifræðinga.

Um langt árabil var starfandi Endurmenntunar- og símenntunarnefnd VFÍ og TFÍ (ENSÍM). Skrifstofa VFÍ hefur tekið við hlutverki nefndarinnar sem er að hafa umsjón með öllu endurmenntunar- og símenntunarstarfi félagsins og annast samskipti út á við á þessu sviði fyrir þeirra hönd.

Skrifstofa VFÍ fylgist með upplýsingum tengdum endurmenntun og hefur umsjón með samskiptum við meðal annars Endurmenntun HÍ og Opna háskólann.

VFÍ hefur frá upphafi verið aðili að Endurmenntun HÍ og er því heiðurssamstarfsaðili. Á árinu 2009 var skrifað undir samstarfssamning. Markmiðið með samningnum er að auka framboð á námskeiðum, vinna saman að kynningu þeirra og efla tengsl skrifstofu félaganna við Endurmenntun HÍ. Félagsmenn fá valin námskeið á sérstökum afsláttarkjörum.

Allar ábendingar eru vel þegnar og má senda þær til framkvæmdastjóra félagsins.