Um VFÍ

Verkfræðingafélag Íslands

Verkfræðingafélag Íslands var stofnað 1912 og er mikilvægur samstarfsvettvangur til þess að efla verkfræðilega og vísindalega þekkingu á Íslandi og vinna að hagsmuna- og kjaramálum verkfræðinga með fjölbreyttu og öflugu starfi. Félagsmenn eiga ýmist aðild að Kjararáði eða Ráði stjórnenda og sjálfstætt starfandi. Skipurit félagsins má nálgast hér. Lesa meira
 

Merk tímamót - Markmið félagsins

Þann 1. júlí 2011 tók sameining Verkfræðingafélags Íslands og Stéttarfélags verkfræðinga formlega gildi undir heiti þess fyrrnefnda.  Markmiðið með sameiningunni er að þjóna sem best hagsmunum allra verkfræðinga. Við sameininguna voru félagsmenn um 2200 eða um 75% allra verkfræðinga á vinnumarkaði.

Lesa meira
 

Starfsheitið verkfræðingur er gæðastimpill

Verkfræðimenntun er mjög krefjandi undirbúningur fyrir ævistarf. VFÍ samþykkir menntun og réttindi verkfræðinga og stendur vörð um þau. Samkvæmt lögum hafa þeir menn einir rétt til að kalla sig verkfræðing, sem fengið hafa til þess leyfi ráðherra, enda hafi þeir lokið námi frá fullgildum verkfræðiskóla. Menntamálanefnd VFÍ er umsagnaraðili um starfsheitisumsókn. Í samvinnu við Iðnaðarráðuneytið hefur VFÍ sett fram þær menntunarkröfur sem þarf til að öðlast starfsheitið verkfræðingur.

 

Við styrkjum stöðu fagsins og einstaklinga innan þess

Við styrkjum stöðu fagsins og einstaklinga innan þess með því að efla þekkingu og tryggja faglega umfjöllun. VFÍ er stofnaðili að Endurmenntun Háskóla Íslands (EHÍ) og tryggir framboð símenntunar með góðu samstarfi við EHÍ. Vaxandi samkeppni milli faghópa um forystu á sviði vísinda, stjórnunar, athafna og viðskipta undirstrikar nauðsyn þess að efla þekkingu og samstöðu verkfræðinga.

 

Við aukum framtíðarmöguleika með góðri ímynd verkfræðinnar

Góð ímynd starfsstéttar er mikilvæg í samfélagi nútímans. Ímynd verkfræðinga varðar hvern og einn og hún kemur ekki af sjálfu sér. Hana þarf að byggja upp markvisst og með samvirkum hætti. Ef við tökum ekki frumkvæðið, eigum við á hættu að orðstír verkfræðinga verði mótaður af öðrum sem síður skyldi.
 

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica