Félagsaðild
Í félagslögum VFÍ er að finna eftirfarandi um félagsaðild að VFÍ:
4. grein. Skilyrði um félagsaðild.
Almennir félagar geta orðið:
- Þeir sem lokið hafa viðurkenndri prófgráðu í verkfræði, svo og þeir sem lokið hafa viðurkenndri prófgráðu í þeim vísindagreinum sem verkfræðin byggist á, s.s. eðlisfræði, efnafræði og stærðfræði.
- Stjórn félagsins getur boðið fræðimönnum í raunvísindum og framkvæmdamönnum að gerast almennir félagar, enda mæli sérstakar ástæður með því. Stjórnin tekur endanlega afstöðu til slíkra umsókna.
-
Verkfræðinemar og nemar í vísindagrein sem verkfræðin byggist á, sem lokið hafa einu námsári af háskólanámi geta orðið ungfélagar. Ungfélagar hafa takmörkuð réttindi og skyldur meðan þeir stunda námið.
Ungfélagar
Verkfræðinemar og nemar í vísindagrein sem verkfræðin byggist á, sem lokið hafa einu námsári af háskólanámi geta orðið ungfélagar. Ungfélagar hafa takmörkuð réttindi og skyldur meðan þeir stunda námið.
Gestaaðild
Félagi í VFÍ eða TFÍ, sem sækir um vinnu, eða vinnur eða er búsettur um stundarsakir í einhverju hinna norðurlandanna getur gerst gestafélagi í félagi viðkomandi lands. Sama gildir um félagsmenn þeirra félaga sem eru aðilar að NORDING þeir geta gerst gestafélagar í VFÍ eða TFÍ.
Umsóknir
Þeir, sem óska að gerast félagar skv. 1. lið 4.gr., skulu senda stjórn félagsins umsóknir um inngöngu á eyðublöðum, sem stjórnin gefur út. Framkvæmdastjóri félagsins sendir Menntamálanefnd VFÍ til umsagnar allar umsóknir um inngöngu í félagið og/eða verkfræðingstitilinn. Menntamálanefnd fer eftir þeim reglum sem stjórnin hefur samþykkt um meðferð umsókna (inntökureglur), þar sem m.a. skal kveðið á um lágmarkskröfur sem gera skal til menntunar nýrra félagsmanna. Ef umsögn Menntamálanefndar er jákvæð ber stjórninni að veita umsækjanda aðild að félaginu. Ef umsögn er neikvæð getur stjórnin ekki veitt viðkomandi aðild að félaginu, nema í algjörum undantekningartilvikum, t.d. ef viðkomandi getur ekki aflað tilskilinna gagna vegna styrjalda eða af stjórnmálalegum ástæðum. Í slíkum tilfellum þarf stjórnin að samþykkja inngöngu samhljóða.
