Leiðbeiningar

Leiðbeiningar

1. Inntökubeiðni í VFÍ og/eða umsókn um starfsheiti.

·       Umsækjandi með próf og prófgráðu sem uppfyllir skilyrði til að kalla sig verkfræðing samanber reglur þar um, þarf að senda inn með umsókn staðfest prófskírteini frá viðkomandi skóla ásamt ferilskrá sem lýsir námi og skilgreiningu á einingum námsins. Fram þarf að koma hvaða ár nám hefst og hvenær því líkur.

·         Hægt er að sækja um hér á vef félagsins eða koma á skrifstofuna að Engjateigi 9, 105 Reykjavík.

·         Þeir sem útskrifast frá Verkfræðideild Háskóla Íslands eða Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík geta heimilað félaginu að sækja námsferilskrána til viðkomandi skóla í stað þess að senda hana inn.

·         Iðnaðarráðuneyti tekur ljósrit af frumskjölum þar sem fram þurfa að koma upplýsingar um próf og prófgráður ef einungis er sótt um starfsheiti.

·         Æskilegt er að upplýsingar um undanfara náms fylgi þ.e. stúdentspróf eða annað sambærilegt próf og þá hvaða ár og hvaðan.

2.     Mynd þarf að fylgja umsókn ef um inntökubeiðni í félagið er að ræða.

3.     Athugið
Umsóknir verða ekki teknar til afgreiðslu fyrr en upplýsingar liggja fyrir sbr. hér að ofan.

4.     Umsækjendum er bent á að kynna sér vel inntökureglur og félagslög VFÍ sem er að finna á heimasíðunni eða hægt er að sækja á á skrifstofu félagsins að Engjateigi 9, 105 Reykjavík.

5.     Allar umsóknir um starfsheiti og inngöngu í VFÍ fara til afgreiðslu hjá Menntamálanefnd VFÍ. Sama máli gegnir um fyrirspurnir varðandi námsmat.

6.     Fyrirspurnum um umsóknir og öðrum daglegum erindum svarar skrifstofa VFÍ. Ef erindið er brýnt má leita til formanns Menntamálanefndar VFÍ, sjá þó 4. grein í inntökureglum VFÍ.

7.      Menntamálanefnd fundar reglulega fyrsta fimmtudag hvers mánaðar, nema júlímánuð, en þá er sumarfrí. Erindi þurfa að hafa borist fyrir kl. 16:00 næsta fimmtudag á undan.

Senda grein

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica