Félagsgjöld

Félagsgjöld

Félagsgjöld VFÍ eru ákveðin á aðalfundi ár hvert en í 30. gr. félagslaga (sjá hér að neðan) er gerð grein fyrir frávikum frá félagsgjaldinu.

Á síðasta aðalfundi var félagsgjaldið ákveðið 24.000 kr. Raunlækkun félagsgjaldanna á síðasta áratug er yfir 50% miðað við launavísitölu.

Á aðalfundi 2006 var félagsgjaldi einnig breytt þannig að nú eru ungfélagar og félagar í námi gjaldfríir.

Á aðalfundi 2002 var ákveðið að nýútskrifaðir (eftir BS, MS og Dr.) greiði lægri gjöld fyrstu fjögur árin eftir útskrift.

Stjórn VFÍ ákvað einnig að nýta heimild í félagslögum til að lækka gjöld þeirra sem einnig eru í SV um 3150 kr.

Úr félagslögum VFÍ 30. grein

Félagsmenn búsettir utan Reykjavíkur og nágrennis skulu greiða tvo þriðju hluta af fullu félagsgjaldi nema þar sem er starfandi landshlutadeild, þá greiða félagsmenn 4/5 hluta af fullu félagsgjaldi.

Félagar búsettir erlendis skulu greiða helming af fullu félagsgjaldi.

Ungfélagar og félagar sem eru í fullu námi skulu ekki greiða félagsgjald.

Nýr félagsmaður skal greiða félagsgjald sem hér segir sé hann búsettur á höfuðborgarsvæðinu:

  • Prófár 1/10 af fullu félagsgjaldi
  • Prófár + eitt ár 1/4 af fullu félagsgjaldi
  • Prófár + tvö ár 1/4 af fullu félagsgjaldi
  • Prófár + þrjú ár 1/2 af fullu félagsgjaldi
  • Prófár + fjögur ár 1/2 af fullu félagsgjaldi
  • Prófár + fimm ár fullt félagsgjald

Þeir félagsmenn sem samkvæmt 9. gr. félagslaga VFÍ eiga ekki rétt til setu í stjórn og/eða Menntamálanefnd VFÍ greiða eigi hærra en 1/2 félagsgjald.

Nýir félagsmenn búsettir utan Reykjavíkur og nágrennis skulu greiða tvo þriðju hluta félagsgjaldsins sbr. töfluna hér að ofan nema þar sem er starfandi landshlutadeild, þá greiða félagsmenn 4/5 hluta af félagsgjaldinu hér að ofan, þó aldrei lægra en 1/10 af fullu félagsgjaldi.

Félagsmenn eldri en 70 ára greiði einn tíunda af fullu félagsgjaldi.

Félagsmenn eldri en 65 ára sem hætt hafa störfum greiði einn tíunda af fullu félagsgjaldi.

Heiðursfélagar greiði ekki félagsgjald.

Félagsmenn sem eru í skráðri sambúð eða eru hjón greiði hvort þrjá fjórðu hluta þess gjalds sem hvoru bæri að greiða væru þau ekki í hjónabandi/sambúð.

Landshlutadeildir fá greitt fjórðung þeirra félagsgjalda sem greidd eru af félögum í viðkomandi landshluta.

Senda grein


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica