INNTÖKUREGLUR VFÍ

INNTÖKUREGLUR VFÍ

1. grein

Sá, sem áhuga hefur á að gerast félagsmaður í VFÍ, snýr sér til skrifstofu félagsins og aflar sér þar upplýsinga um kröfur þær, sem félagið gerir til nýrra félagsmanna.
VFÍ skal gera væntanlegum umsækjanda ljóst, að viðkomandi beri sú skylda að veita félaginu hver þau gögn, sem það telur nauðsynleg til staðfestingar á menntun umsækjanda. Sönnunarbyrði þar að lútandi hvílir öll á umsækjanda.

2. grein

Telji viðkomandi sig uppfylla kröfur félagsins til nýrra félaga, fyllir umsækjandi út sérstakt umsóknareyðublað og leggur fram gögn með umsókn sinni. Gögn þessi skulu veita sem gleggstar upplýsingar um þau atriði, sem við eiga sbr. 5. og 6. grein hér á eftir. Frekari gagna kann að verða óskað.

3. grein

Framkvæmdastjóri félagsins sendir menntamálanefnd VFÍ til umsagnar allar umsóknir um inngöngu í félagið.

4. grein

Menntamálanefnd leggur hlutlaust mat á umsóknir þær, sem henni berast. Hafi umsækjandi bein eða óbein samskipti við nefndarmenn varðandi umsókn sína meðan á afgreiðslu hennar stendur, fyrirgerir umsækjandi hlutleysi nefndarinnar.

5. grein

Mat menntamálanefndar VFÍ byggist á kröfum félagsins til menntunar umsækjenda. Nefndin skal mæla með inngöngu umsækjanda í félagið, ef eftirfarandi skilyrðum er fullnægt:

A. Umsækjandi uppfyllir skilyrði til að fá leyfi ráðherra til að kalla sig verkfræðing sbr. "Mat VFÍ á umsóknum um verkfræðingstitil"

B. Umsækjandi hefur lokið prófgráðu í undirstöðugreinum verkfræðinnar (stærðfræði, eðlisfræði eða efnafræði) eða einhverju af hliðar- eða sérsviðum verkfræðinnar (t.d. tölvunarfræði, jarðeðlisfræði eða lífefnafræði) og uppfyllir að auki þessi skilyrði:

  1. Lokið er BS prófi eða samsvarandi prófi á viðkomandi fagsviði.
  2. Lokið er með prófgráðu framhaldsnámi á sama fagsviði eða á fagsviði, sem er í nánum tengslum við verkfræðileg viðfangsefni.
  3. Próf eru frá háskóla eða háskólum, sem menntamálanefnd telur færa um að veita fullnægjandi menntun á viðkomandi fagsviði.
  4. Námið uppfyllir kröfur félagsins til lágmarksmenntunar í undirstöðugreinum verkfræðinnar sbr. "Mat VFÍ á umsóknum um verkfræðingstitil".
  5. Heildarlengd náms er sambærileg við þær kröfur, sem félagið gerir náms í verkfræði sbr. "Mat VFÍ á umsóknum um verkfræðingstitil".
  6. Námið er þess eðlis, að umsækjandi hefur eða getur öðlast skilning á störfum og skyldum verkfræðinga og er fær um að taka þátti í faglegum umræðum þeirra.

6. grein

Menntamálanefnd getur einnig mælt með inngöngu umsækjanda með takmörkuðum réttindum í félagið ef eftirfarandi skilyrðum er fullnægt:

Umsækjandi hefur lokið með prófgráðu minnst 90 eininga námi í verkfræði, þar sem hver eining svarar til einnar viku í fullu námi. Námið hefur verið stundað við háskóla eða tækniháskóla, sem menntamálanefnd telur færa(n) um að veita fullnægjandi menntun á viðkomandi sérsviði. Prófgráðan skal uppfylla eftirfarandi lágmarkskröfur VFÍ:

a) Undirstöðugreinar verkfræðinnar 18e (36 ECTS)
b) Verkfræðilegar undirstöðugreinar 18e   (36 ECTS)
c) Verkfræðigreinar 36e   (72 ECTS)
d) Námsgreinar að frjálsu vali sem talist geta til verkfræðináms 18e   (36 ECTS)
Lágmark 90e (180 ECTS)

7. grein

Menntamálanefnd VFÍ sendir framkvæmdastjóra félagsins umsögn sína.

8. grein

Ef umsögn menntamálanefndar er jákvæð og umsækjandi er íslenskur ríkisborgari, ber stjórn að veita honum aðild að VFÍ.
Ef umsögn menntamálanefndar er jákvæð, en umsækjandi er erlendur ríkisborgari, þarf meirihluti stjórnar að samþykkja inngöngu í félagið.
Ef umsögn menntamálanefndar er neikvæð, getur stjórn ekki veitt viðkomandi aðild að VFÍ nema í algjörum undantekningartilvikum, eins og ef viðkomandi getur ekki aflað tilskilinna gagna vegna styrjalda eða af stjórnmálalegum ástæðum. Í slíkum tilfellum þarf stjórn að samþykkja inngöngu samhljóða.

9. grein

Framkvæmdastjóri VFÍ tilkynnir umsækjanda hverja afgreiðslu umsóknin hefur hlotið.

10. grein

Félagsmaður sem hlotið hefur inngöngu með takmörkuðum réttindum í VFÍ samkvæmt 6. grein hér að framan, verður fullgildur félagi þegar hann uppfyllir almenn skilyrði um inngöngu í félagið samkvæmt 5. grein hér að framan.

11. grein

Reglur þessar hlutu staðfestingu aðalfundar VFÍ þann 29.mars 2000.

Senda grein


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica