Lög og auglýsingar

STARFSHEITIÐ

Samkvæmt lögum nr. 8 frá 11. mars 1996 hafa þeir menn einir rétt til að kalla sig verkfræðinga sem fengið hafa til þess leyfi ráðherra, enda hafi þeir lokið námi frá fullgildum verkfræðiskóla. Menntamálanefnd VFÍ í setur reglur í samvinnu við Iðnaðarráðuneytið, sem auglýsir hvaða nám telst leiða til fullnaðarprófs í verkfræði.

Her á eftir er að finna:
Lög nr. 8 frá 11. mars 1996 "Um löggildingu nokkurra starfsheita sérfræðinga í tækni og hönnunargreinum"

Augl. 845/1999 (verkfræðingar) "Um mat á umsóknum um leyfi til að kalla sig verkfræðing"
Auglýsing 8146 frá 26. ágúst 1992 "Um mat á umsóknum um leyfi til að kalla sig verkfræðing"

Lög nr. 8 frá 11. mars 1996

Um löggildingu nokkurra starfsheita sérfræðinga í tækni og hönnunargreinum segir svo í fyrstu og annarri grein:

1. gr.

Lög þessi taka til eftirtalinna starfsheita:
1. verkfræðinga,
2. tæknifræðinga,
3. arkitekta (húsameistara),
4. byggingafræðinga,
5. húsgagna- og innanhússhönnuða,
6. iðnfræðinga,
7. landslagshönnuða og
8. skipulagsfræðinga.

2. gr.

Rétt til að nota starfsheiti þau sem lög þessi taka til eða orð sem fela í sér þau heiti hafa þeir menn einir sem fengið hafa til þess leyfi ráðherra, sbr. 3. gr., eða þeir sem fengið hafa staðfestingu ráðherra á leyfi til að bera samsvarandi starfsheiti sem veitt hefur verið í ríki sem er aðili að samningi um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. 4. gr.

3. gr.

Engum má veita leyfi það er um ræðir í 2. gr. nema hann hafi lokið fullnaðarprófi í viðkomandi starfsgrein.
Fagfélög þeirra starfsgreina sem lög þessi taka til skulu setja sér reglur 1) um hvaða nám teljist leiða til fullnaðarprófs í viðkomandi starfsgrein. Þær reglur skulu taka gildi þegar þær hafa verið staðfestar af ráðherra og birtar í Stjórnartíðindum. Rétt til að öðlast leyfi hafa þeir sem lokið hafa námi samkvæmt greindum reglum að mati ráðherra að fenginni umsögn viðkomandi fagfélags.

1)Rg. 112/1997 (skipulagsfræði),augl. 845/1999 (verkfræðingar).

4. gr.

Ráðherra skal staðfesta leyfi til að bera starfsheiti sem lög þessi taka til samkvæmt umsókn ríkisborgara frá ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins ef viðkomandi leggur fram vottorð frá ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins sem uppfyllir skilyrði:
1. tilskipunar 85/384/EBE ef um arkitekt er að ræða.
2. tilskipunar 89/48/EBE ef um aðrar starfsstéttir er að ræða.



Augl.845/1999 (verkfræðingar).

AUGLÝSING

um mat á umsóknum um leyfi til að kalla sig verkfræðing

Iðnaðarráðuneytið og Verkfræðingafélag Íslands (VFÍ) hafa komið sér saman um að miða við eftirfarandi reglur við mat á umsóknum um leyfi til að kalla sig verkfræðing, sbr. 1.-3. gr. laga nr. 8/1996 um löggildingu nokkurra starfsheita sérfræðinga í tækni- og hönnunargreinum eins og þeim hefur verið breytt.

Mat menntamálanefndar VFÍ byggist á kröfum félagsins til menntunar umsæjenda.
Menntamálanefnd skal mæla með því að umsækjandi fái leyfi ráðherra til að kalla sig verkfræðing ef eftirfarandi skilyrðum er fullnægt:

Lokið er með prófgráðu námi við háskóla eða tækniháskóla sem menntamálanefnd telur færan um að veita fullnægjandi menntun á viðkomandi sérsviði. Prófgráðan skal að námslengd og samsetningu vera sambærileg meistaraprófi í verkfræði og fullnægja eftirfarandi lágmarkskröfum VFÍ (hver eining svarar til einnar viku í fulllu námi):

a)

Undirstöðugreinar verkfræðinnar
25e
b)
Verkfræðilegar undirstöðugreinar
25e
c)
Verkfræðigreinar
60e

Þessu til viðbótar skulu vera greinar að frjálsu vali sem talist geta til verkfræðináms og skulu þær vera hluti af heilsteyptu námi og heildarlengd námsins, skipulagt á formlegan hátt, eigi styttra en fjögur og hálft ár.

Almennt teljast eftirtaldir námstitlar fullnægja framangreindum skilyrðum ef allt námið hefur verið stundað við háskóla eða tækniháskóla. (Listi þessi er einungis birtur til leiðbeiningar. Í öllum tilvikum þarf námið að fullnægja framgreindum kröfum):

Land

Námstitill

Athugasemdir

Ísland MS prófí verkfræði -
Danmörk Civilingeniør, Akademiingenir Ekki Teknikumingeniør, Akademiingeniör eða Diplomingeniör
Finnland > Diplomi-insinööri Ekki Insinööri
Noregur Sivilingeniør Ekki Ingeniør
Svíþjóð Civilingenjör -
Austurríki Diplom-Ingenieur -
Belgía Ingénieur Civil, Ingénieur Chimiste... Ekki Ingénieur Industriel
Bretland MSc in Engineering
Frakkland Ingénieur diplomé de.. -
Grikkland Diplomatouchos Michanikos -
Holland Ingenieur Ekki Technical Ingenieur
Írland MSc in Engineering
Ítalía Laurea Dottore in Ingegneria -
Portúgal Engenheiro -
Sviss Diplom-Ingenieur,
Ingénieur diplomé
-
Spánn Ingenieru Superior,
Ingenieru Químico
Ekki Ingeniero Técnico
Þýskaland Diplom-Ingenieur Prófgráða skal vera frá Universität, Technische Universität, Technische Hochschule eða Gesamt-hochschule, en ekki Fach-hochschule (Dipl.-Ing.(FH))
Bandaríkin MSc in Engineering
Einnig MEng, ME eða ScM
Námsbraut skal hafa viðurkenningu ABET (Accreditation Board for Engineering and Technology)

Ákvæði til bráðabirgða

Þeir sem innritast hafa í verkfræðinám fyrir 1. janúar 2000 og stunda nám sitt samfellt eiga þess kost að fá próf sitt metið eftir þeim matsreglum sem í gildi voru frá 21. ágúst 1992 og fram að gildistöku þeirra meginreglna sem hér eru auglýstar.

Iðnaðarráðuneytið, 8. desember 1999.
Finnur Ingólfsson

Augl.8146/1992 (verkfræðingar).

AUGLÝSING

um mat á umsóknum um leyfi til að kalla sig verkfræðing

Iðnaðarráðuneytið og Verkfræðingafélag Íslands (VFÍ) hafa komið sér saman um að miða við eftirfarandi reglur við mat á umsóknum um leyfi til að kalla sig verkfræðing, sbr. 1.-2. gr. laga nr. 62/1986.

Lágmarkskröfur VFÍ varðandi skipan háskólanáms verkfræðinga eru eftirfarandi (hver eining svarar til einnar viku í fullu námi):

a)

Undirstöðugreinar verkfræðinnar
25e
b)
Verkfræðilegar undirstöðugreinar
25e
c)
Verkfræðigreinar
50e

d)

Námsgreinar að frjálsu vali, talist geta til verkfræðináms

20e

Lágmark

120e

Menntamálanefnd skal mæla með því að umsækjandi fái leyfi ráðherra til að kalla sig verkfræðing ef eftirfarandi skilyrði er fullnægt:

Lokið er með prófgráðu námi við háskóla eða tækniháskóla sem menntamálanefnd telur færan um að veita fullnægjandi menntun á viðkomandi sérsviði. Prófgráðan skal að námslengd og samsetningu vera sambærileg meistaraprófi í verkfræði og fullnægja eftirfarandi lágmarkskröfum VFÍ (hver eining svarar til einnar viku í fulllu námi):

Eftirtaldir námstitlar teljast uppfylla framangreind skilyrði:

Land

Námstitill

Athugasemdir

Ísland MS prófí verkfræði -
Danmörk Civilingeniør,
Akademiingenir
Ekki Teknikumingeniør
Finnland > Diplomi-insinööri Ekki Insinööri
Noregur Sivilingeniør Ekki Ingeniør
Svíþjóð Civilingenjör -
Austurríki Diplom-Ingenieur -
Belgía Ingénieur Civil,
Ingénieur Chimiste...
Ekki Ingénieur Industriel
Bretland MSc in Engineering
Frakkland Ingénieur diplomé de.. -
Grikkland Diplomatouchos Michanikos -
Holland Ingenieur Ekki Technical Ingenieur
Írland Chartered engineer Hæfnistitill, sem fæst að lokinni þjálfun og mati
Ítalía Laurea Dottore in Ingegneria -
Portúgal Engenheiro -
Sviss Diplom-Ingenieur,
Ingénieur diplomé
-
Spánn Ingenieru Superior,
Ingenieru Químico
Ekki Ingeniero Técnico
Þýskaland Diplom-Ingenieur Prófgráða skal vera frá Universität, Technische Universität, Technische Hochschule eða Gesamt-hochschule, en ekki Fach-hochschule (Dipl.-Ing.(FH))
Bandaríkin MSc in Engineering Námsbraut skal hafa viðurkenningu ABET

Reykjavík 26. ágúst 1992

Iðnaðarráðuneytið.
Verkfræðingafélag Íslands



Senda efni

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica