Mat VFÍ á umsóknum um verkfræðingstitil
1. grein
Sá, sem óskar leyfis til að kalla sig verkfræðing skv. lögum nr. 8/1996, snýr sér til skrifstofu félagsins eða til iðnaðarréðuneytisins og aflar sér þar upplýsinga um kröfur þær, sem VFÍ gerir til menntunar verkfræðinga. Væntanlegum umsækjanda skal gert ljóst, að viðkomandi beri sú skylda að veita VFÍ hver þau gögn, sem það telur nauðsynleg til staðfestingar á menntun umskæjanda. Sönnunarbyrði þar að lútandi hvílir öll á umsækjanda.
2. grein
Telji viðkomandi sig uppfylla menntunarkröfur VFÍ til verkfræðingstitils, fyllir umsækjandi út sérstakt umsóknareyðublað og leggur fram gögn með umsókn sinni. Gögn þessi skulu veita sem gleggstar upplýsingar um þau atriði, sem við eiga sbr. 5. grein hér á eftir. Frekari gagna kann að verða óskað.
3. grein
Framkvæmdastjóri félagsins sendir menntamálanefnd VFÍ til umsagnar allar umsóknir um verkfræðingstitilinn.
4. grein
Menntamálanefnd leggur hlutlaust mat á umsóknir þær, sem henni berast. Hafi umsækjandi bein eða óbein samskipti við nefndarmenn varðandi umsókn sína meðan á afgreiðslu hennar stendur, fyrirgerir umsækjandi hlutleysi nefndarinnar.
5. grein
Mat menntamálanefndar VFÍ byggist á kröfum félagsins til menntunar umsæjenda.
Menntamálanefnd skal mæla með því að umsækjandi fái leyfi ráðherra til að kalla sig verkfræðing ef eftirfarandi skilyrðum er fullnægt:
Lokið er með prófgráðu námi við háskóla eða tækniháskóla sem menntamálanefnd telur færan (færa) um að veita fullnægjandi menntun á viðkomandi sérsviði. Prófgráðan skal að námslengd og samsetningu vera sambærileg meistaraprófi í verkfræði og fullnægja eftirfarandi lágmarkskröfum VFÍ (hver eining svarar til einnar viku í fulllu námi):
a) Undirstöðugreinar verkfræðinnar 25 e (50 ECTS)
b) Verkfræðilegar undirstöðugreinar 25 e (50 ECTS)
c) Verkfræðigreinar 60 e (120 ECTS)
Þessu til viðbótar skulu vera greinar að frjálsu vali sem talist geta til verkfræðináms og skulu þær vera hluti af heilsteyptu námi og heildarlengd námsins, skipulagt á formlegan hátt, eigi styttra en fjögur og hálft ár.
Almennt teljast eftirtaldir námstitlar fullnægja framangreindum skilyrðum ef allt námið hefur verið stundað við háskóla eða tækniháskóla. (Listi þessi er einungis birtur til leiðbeiningar. Í öllum tilvikum þarf námið að fullnægja framgreindum kröfum):
Land |
Námstitill |
Athugasemdir |
| Ísland | MS prófí verkfræði | - |
| Danmörk | Civilingeniør, Akademiingenir | Ekki Teknikumingeniør, Akademiingeniör eða Diplomingeniör |
| Finnland | Diplomi-insinööri | Ekki Insinööri |
| Noregur | Sivilingeniør | Ekki Ingeniør |
| Svíþjóð | Civilingenjör | - |
| Austurríki | Diplom-Ingenieur | - |
| Belgía | Ingénieur Civil, Ingénieur Chimiste | Ekki Ingénieur Industriel |
| Bretland | MSc in Engineering | |
| Frakkland | Ingénieur diplomé de.. | - |
| Grikkland | Diplomatouchos Michanikos | - |
| Holland | Ingenieur | Ekki Technical Ingenieur |
| Írland | MSc in Engineering | |
| Ítalía | Laurea Dottore in Ingegneria | - |
| Portúgal | Engenheiro | - |
| Sviss | Diplom-Ingenieur, Ingénieur diplomé |
- |
| Spánn | Ingenieru Superior, Ingenieru Químico |
Ekki Ingeniero Técnico |
| Þýskaland | Diplom-Ingenieur | Prófgráða skal vera frá Universität, Technische Universität, Technische Hochschule eða Gesamt-hochschule, en ekki Fach-hochschule (Dipl.-Ing.(FH)) |
| Bandaríkin | MSc in Engineering Einnig MEng, ME eða ScM |
Námsbraut skal hafa viðurkenningu ABET (Accreditation Board for Engineering and Technology) |
6. grein
Menntamálanefnd VFÍ sendir framkvæmdastjóra félagsins umsögn sína.
7. grein
Ef umsögn Menntamálanefndar er jákvæð og umsækjandi er íslenskur ríkisborgari, ber stjórn að veita honum aðild að VFÍ.
Ef umsögn Menntamálanefndar er jákvæð, en umsækjandi er erlendur ríkisborgari, þarf meirihluti stjórnar að samþykkja inngöngu í félagið.
Ef umsögn Menntamálanefndar er neikvæð, getur stjórn ekki veitt viðkomandi aðild að VFÍ nema í algjörum undantekningartilvikum, eins og ef viðkomandi getur ekki aflað tilskilinna gagna vegna styrjalda eða af stjórnmálalegum ástæðum. Í slíkum tilfellum þarf stjórn að samþykkja inngöngu samhljóða.
8. grein
Framkvæmdastjóri VFÍ tilkynnir umsækjanda hverja afgreiðslu umsóknin hefur hlotið.
9. grein
Félagsmaður sem hlotið hefur inngöngu með takmörkuðum réttindum í VFÍ samkvæmt 6. grein hér að framan, verður fullgildur félagi þegar hann uppfyllir almenn skilyrði um inngöngu í félagið samkvæmt 5. grein hér að framan.
10. grein
Reglur þessar hlutu staðfestingu aðalfundar VFÍ þann 29.mars 2000.
Ákvæði til bráðabirgða
Þeir sem innritast hafa í verkfræðinám fyrir 1. janúar 2000 og stunda nám sitt samfellt eiga þess kost að fá próf sitt metið eftir þeim matsreglum sem í gildi voru frá 21. ágúst 1992 og fram að gildistöku þeirra meginreglna sem auglýstar voru í Lögbirtingarblaðinu og undirritaðar í Iðnaðarráðuneytinu, 8. desember 1999 af
Finni Ingólfssyni.
