Verkfræðinemar, sem lokið hafa einu námsári af háskólanámi í verkfræði eða vísindagrein, sem verkfræðin byggist á, geta orðið félagar með takmörkuðum réttindum og skyldum skv. 9. og 10.gr. meðan þeir stunda námið. Nefnast þeir ungfélagar.
Verkfræðinemar, sem óska eftir inntöku skulu senda stjórn skriflega umsókn. Stjórnin tekur endanlega afstöðu til slíkra umsókna.