Árbók - annáll liðins árs
Fagtímarit
Árbókin gefur góða yfirsýn yfir framkvæmdir, þróun og framfarir á sviði tækni og vísinda á hverjum tíma. Árbókin er gefin út af VFÍ og TFÍ og kemur út einu sinni á ári. Næsta Árbók er væntanleg í desember nk.
Úr efnisyfirliti Árbókar:
- Starfsannáll félaganna
- Nýir félagsmenn
- Tækniannáll
- Kynning stofnana og fyrirtækja
- Ritrýndar greinar
- Tækni- og vísindagreinar
- Árbókina prýða fjölmargar myndir.
Árbókin er seld á skrifstofu VFÍ/TFÍ og kostar kr. 2500,-
Ritnefnd Árbókar
| Bjarni Bessason VFÍ | 525 4655 | bb@hi.is | |
| Kristinn Andersen VFÍ, | 563 8130 | 825 8130 | kiddi@marel.is |
| Árni Þór Árnason TFÍ | 563 2645 | 690 1338 | arnith@rvk.is |
| Óli Jón Hertervig TFÍ | 563 2404 | 693 7404 | olijon@rvk.is |
| Ragnar Ragnarsson, ritstjóri | 581 2687 | 847 2374 | rara@simnet.is |
Ávarp ritstjóra
Ágætu félagar!
Ráðgert er að gefa út Árbók VFÍ/TFÍ í desember næstkomandi. Ef þær áætlanir eiga að standast þarf efni í árbókina að berast tímanlega. Menn eru vinsamlega beðnir um að hafa eftirfarandi í huga:
Vísindagreinar
VFÍ og TFÍ er mikið kappsmál að á Íslandi sé gróska í tækniframförum og áhugi félagsmanna fyrir vísindum sé sem mestur. Árbókin er réttur vettvangur fyrir tækni- og vísindagreinar félagsmanna. Menn eru hvattir til að senda inn greinar og jafnframt hvetja aðra til dáða hvað þetta varðar. Vísindamönnum er gefinn kostur á að fá birtar eftir sig ritrýndar greinar. Slíkar greinar eru ritrýndar af tveimur sérfræðingum á því sviði sem vísindagreinin nær til og fást ekki birtar nema þeir telji þær birtingarhæfar sem ritrýndar greinar. Þessar greinar jafngilda vísindagreinum sem fást birtar í virðulegum erlendum tímaritum.
Þættir úr sögu félaganna
Fróðlegt væri að fá frásagnir af mönnum og málefnum frá fyrri tíð er varða tækni eða sögu félaganna.
Kynning fyrirtækja og stofnana
Í árbókinni er kafli þar sem fyrirtæki og stofnanir fá tækifæri til að gefa yfirlit um starfsemi sína og segja frá markverðum atburðum með tilliti til verkfræði og tæknifræði í víðum skilningi. Auglýsingar Hvergi er hægt að nálgast tæknimenn á einfaldari hátt en í Árbók VFÍ/TFÍ. Markhópurinn er skýr og afmarkaður og skilaboð til þeirra eru auðsend.
Styrktarlínur
Styrktarlínur velvildarmanna félaganna eru vel þegnar.
Vinsamlegast gangið frá tækni- eða vísindagreinum sem allra fyrst og alls ekki síðar en um miðjan september næstkomandi. Sömuleiðis er æskilegt að kynningargreinar eða auglýsingar berist sem fyrst.
Allar nánari upplýsingar veitir ritstjóri Árbókarinnar Ragnar Ragnarsson, verkfræðingur
Heimasími: 5812687
Vinnusími: 5628955
Símbréf: 5628950
Netfang: rara@simnet.is
Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu VFÍ og TFÍ sem kemur skilaboðum til ritstjóra.
