Kynningarfundur

Kynningarfundur haldinn 10. mars

Fimmtudaginn 10. mars var haldinn kynningarfundur vegna atkvæðagreiðslu sem nú stendur yfir um sameiningu VFÍ og SV. Rúmlega 40 manns mættu á fundinn. Fundurinn hófst á því að Logi Kristjánsson kynnti starf sameiningarnefndarinnar, tillögur sem hún lagði fram og helstu forsendur og markmið með sameiningunni. Því næst tóku formenn félaganna til máls, þau Jóhanna Harpa Árrnadóttir, formaður VFÍ og Kári Steinar Karlsson, formaður SV. Í máli þeirra kom fram að stjórnir beggja félaga eru einhuga í afstöðu sinni og styðja sameininguna. Að framsöguerindum loknum var boðið upp á umræðu og fyrirspurnir þar komu fram eftirfarandi spurningar:

1) Mun sameiningin hafa áhrif á stöðu þeirra sem eru í hvorugu félaginu, en eru t.d. í Félagi ráðgjafarverkfræðinga (FRV)? Logi sagði FRV hafa breyst á sl. tíu árum. Það hefði áður byggst á einstaklingsaðild en væri nú fyrst og fremst félag ráðgjafarfyrirtækja. Í dag væru engin tengsl á milli VFÍ og FRV en hér áður fyrr átti formaður FRV sæti í fulltrúaráði VFÍ. Þá sagðist hann telja að sameinað félag nái að höfða betur til yngri verkfræðinga sem í mörgum tilvikum sjái ekki tilgang eða skynsemi í því að hafa tvö félög verkfæðinga.

2) Hefur sameining áhrif á fjölda þeirra sem eiga rétt á dvöl í orlofshúsum? Nei sameiningin hefur engin áhrif þar á. Réttur í sjóðunum er háð greiðslu iðgjalda hér eftir sem hingað til.

 3) Hvert verður félagsgjaldið? Áætlanir gera ráð fyrir að félagsgjald í sameinuðu félagi verði 26.400 krónur. Logi sagði stjórnir félaganna hafa samþykkt, óháð sameiningu, að leggja til hækkun á félagsgjöldum vegna hallareksturs síðastliðin ár. Á aðalfundum beggja félaga verður lögð fram tillaga stjórnar um að félagsgjöldin verði 26.400 krónur. Í dag er félagsgjaldið í VFÍ 24 þúsund krónur en 20.400 krónur í SV.

4) Spurt var um þróun félagsgjalda sl. fimm ár. Logi sagðist ekki hafa þær tölur hjá sér en það væri alveg ljóst að félagsgjöldin hefði langt í frá náð að halda í við launavísitölu og að félagsgjald í sameinuðu félagi yrði umtalsvert lægra en í sambærilegum félögum.

5) Spurt var um stöðu þeirra sem eru ekki með verkfræðimenntun en eru félagar í SV. Logi sagði sameininguna ekki hafa áhrif á réttindi þeirra í sjóðum félagsins og eitt helsta markmið sameiningarinnar væri að efla þjónustu við félagsmenn.

Nokkrir fundarmenn tóku til máls og lýstu afstöðu sinni, ýmist með eða á móti. Einn sagðist vera mjög andsnúinn sameiningu. Það væri alls ekki rétt, eins og haldið væri fram, að faglegir og kjaralegir hagsmunir fari saman. Hann lýsti óánægju sinni með faglegt starf VFÍ, sem væri afar takmarkað. Það birtist m.a. í því félagið væri lítið áberandi í fjölmiðlum. Hann hafði einnig efasemdir um nýtt skipurit og hlutverk Ráðs stjórnenda og sjálfstætt starfandi.

Annar fundarmaður sagðist hlynntur sameiningunni og hvatti til þess að menn hefðu skýra sýn á hvað sameinað félag ætti að gera og hvernig. Það sé nauðsynlegt að selja verkfræðingum, ekki síst þeim nýútskrifuðu, að hagsmunum þeirra sé best borgið innan félagsins. Hann skoraði á stjórnarmenn að fara í alvöru stefnumótun.

Í svipaðan streng tók annar fundarmaður og hvatti til þess að gerð yrði könnun meðal félagsmanna um óskir þeirra varðandi áhersluatriði sameinaðs félags.

Senda efni

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica