Sameining SV, TFÍ og VFÍ
Sameining VFÍ, SV og TFÍ hefur oft verið rædd. Í stefnumótun VFÍ frá 1995 er m.a. ályktað að stefnt skuli að sameiningu félaganna. Það sama ár viðurkenna VFÍ og TFÍ að tæknifræðinám og verkfræðinám sé hvort tveggja af sama meiði og að tæknifræði flokkist sem námsbraut í verkfræði.
Árið 2003 skipuðu stjórnir félaganna nefnd til að ræða hugsanlega sameiningu. Í niðurstöðum nefndarinnar kom fram það álit að stefnt skuli að fullri sameiningu SV, TFÍ og VFÍ. Í kjölfarið stóðu VFÍ og TFÍ fyrir skoðanakönnun þar sem ótvíræður meirihluti var fylgjandi sameiningu. SV stóð fyrir sambærilegri könnun á vordögum 2005 og voru niðurstöður hennar á sömu lund. Því var skipuð önnur nefnd og fékk hún það hlutverk að útfæra hugmynd að einu sameiginlegu félagi verkfræðinga og tæknifræðinga. Nefndin skilaði niðurstöðum í janúar 2005 og þar kom fram að stefna beri að sameiningu félaganna og að byggja skuli sameiginlegt félag á endurskipulögðu VFÍ sem rekið verður á verkefnagrundvelli.
Framlag nefndanna tveggja var grundvöllur atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna um sameiningu félaganna. Atkvæðagreiðslan fór fram í janúar árið 2006. Niðurstaða hennar varð sú að sameiningin náði ekki fram að ganga. Til að breyta lögum VFÍ þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða, 57,89% reyndust hlynnt sameiningunni. 96,63% félagsmanna TFÍ voru hlynntir sameiningunni og 68,95% félagsmanna SV.
Stjórnir félaganna mátu niðurstöðuna á þann veg að félagsmenn væru hlynntir samstarfi félaganna þriggja. Í hönd fór undirbúningur að nánara samstarfi og í ársbyrjun 2008 tók gildi samstarfssamningur félaganna þriggja um samrekstur skrifstofu.
Umræðan um sameininguna var umfangsmikil. Hér fyrir neðan má nálgast skýrslur, greinar og erindi frá sameiningarferlinu:
- Stofnsamningur um sameiningu VFÍ, TFÍ og SV
- Drög að lögum sameinaðs félags
- Grein stýrihóps frá desember 2005
- VT - kynningarfundur
- Nýtt félag verkfræðinga og tæknifræðinga - Eysteinn Einarsson
- Sameining félaganna - Lára V. Júlíusdóttir
- Erindi Kristins Gestssonar
- Viðtal við Guðmund G. Þórarinsson
- Bæklingur um sameiningarmál frá okt. 2005
- Grein stýrihóps frá júní 2005
- Skýrsla um sameiningu frá jan. 2005
- Skýrsla um sameiningu frá des. 2003
- Álit meirihluta stjórnar VFÍ janúar 2006
- Punktar til umhugsunar frá Ólafi Pétri Pálssyni janúar 2006
- Húseignir VFÍ ekki seldar. - Steinar Friðgeirsson desember 2005
