Útgáfa

Fjölbreytt útgáfustarfsemi

VFÍ gefur út ýmiss konar efni, má þar helst nefna:

Verktækni - félagsblað - birtir fréttir, viðtöl, stuttar greinar og umræðu um tæknimál líðandi stundar og ýmislegt annað efni. Blaðið er gefið út í samvinnu við Tæknifræðingafélag Íslands og Stéttarfélag verkfræðinga og kemur út tíu sinnum á ári. Ritstjóri er Sigrún S. Hafstein.

Árbók - annáll liðins árs - Auk þess að fjalla um störf félaganna á liðnu starfsári gefur Árbókin góða yfirsýn yfir framkvæmdir, þróun og framfarir á sviði tækni og vísinda á hverjum tíma. Árbókin er gefin út í samvinnu við TFÍ og kemur út einu sinni á ári. Ritstjóri er Ragnar Ragnarsson.

Orðanefndir VFÍ hafa á undanförnum árum gefið út fjölda tækniorðasafna.

Efling raungreinakennslu í framhaldsskólum á Íslandi - Greinargerð byggð á röð funda á vegum VFÍ í janúar til apríl 1996.

Útflutningur tækniþekkingar - Greinargerð og tillögur VFÍ.   

Verkfræðingatal kom síðast út árið 1996 og hefur að geyma upplýsingar um 1900 verkfræðinga. Fyrri útgáfur eru frá 1956 og 1966.

VFÍ hefur haldið fjölmargar ráðstefnur á undanförnum árum, þar sem athygisverð erindi hafa verið flutt. Efni frá flestum þessum ráðstefnum er hægt að kaupa á skrifstofu VFÍ.



Senda grein


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica