Fyrirsagnarlisti
09.02.2010
Sameiginlegir atburðir
Kynning frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands - Efst á baugi
Gestir á Samlokufundi þriðjudaginn 9. febrúar verða Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri NMÍ og Sigríður Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri á NMÍ og rekstrarstjóri frumkvöðlaseturs. Þau munu kynna það sem er efst á baugi hjá stofnuninni og árangur af samstarfssamningi félaga verkfræðinga og tæknifræðinga og NMÍ. Jafnframt munu þau kynna möguleika á styrkjum til nýsköpunar og frumkvöðlastarfsemi. Þess má geta að starfsmenn NMÍ, með Þorstein í fararbroddi, hafa farið víða um land undanfarið með námskeiðið Orkubóndann sem hefur slegið í gegn. Áhugavert verður að heyra reynslusögur af því námskeiði ásamt fleiri góðum hugmyndum sem eru að gerjast. Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Félagsmenn fá samlokur og drykki án endurgjalds, aðrir greiða sanngjarnt verð fyrir. Allir velkomnir.