Viðburðir

Fyrirsagnarlisti

05.03.2010 Atburðir VFÍ Vinnufundur um siðareglur VFÍ

Vinnufundur um siðareglur Verkfræðingafélags Íslands. Fundurinn verður með "þjóðfundarformi". Þátttakendur voru valdir af handahófi úr félagaskrá VFÍ og einnig skrá iðnaðarráðuneytis yfir þá einstaklinga sem hafa hlotið leyfi til að nota starfsheitið verkfræðingur. Þeim sem hafa áhuga á að taka þátt í fundinum, en lentu ekki í úrtakinu, er bent á að hafa samband við Árna B. Björnsson, framkv.stj. VFÍ.
 

05.03.2010 Sameiginlegir atburðir Kynning fyrir nemendur í HR

Kynning á vegum SV og VFí fyrir BS-nemendur í verkfræði við Háskólann í Reykjavík.
 

06.03.2010 Sameiginlegir atburðir Aðalfundur NTFÍ

Aðalfundur Norðurlandsdeildar TFÍ verður haldinn í húsakynnum Norðurorku á Rangárvöllum. Að fundi loknum verður árlegt síldarkvöld sem haldið er með Norðurlandsdeild VFÍ.
 

06.03.2010 Sameiginlegir atburðir Aðalfundur NVFÍ

Aðalfundur Norðurlandsdeildar VFÍ verður haldinn í húsakynnum Norðurorku á Rangárvöllum. Athugið að á fundinum verða teknar fyrir lagabreytingar um skipan stjórnar. Voru upplýsingar um þær sendar með fundarboði í tölvupósti.
 

12.03.2010 Sameiginlegir atburðir Fundur Kvennanefnda

Kvennanefnd Verkfræðingafélagsins býður til fundar til að fjalla um kyn og völd undir heitinu: Skynjum við hæfi kvenna öðruvísi en hæfi karla? Hvernig staðalmyndir hafa áhrif á mat okkar. Fyrirlesari verður Hulda Þórisdóttir, lektor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Fundurinn sem er liður í samstarfi Félags kvenna í lögmennsku, læknastétt, endurskoðun og verk- og tæknifræði og verður haldinn föstudaginn 12. mars n.k. klukkan 17.00 í húsakynnum Pricewaterhouse Coopers í Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík.
 

17.03.2010 Sameiginlegir atburðir Aðalfundur Verkfræðingafélags Íslands

Aðalfundur Verkfræðingafélags Íslands í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Tillögur, m.a. vegna stjórnarkjörs, þurfa að berast stjórn félagsins fyrir 15. febrúar. Úr stjórn eiga að ganga Gísli Pálsson, Hrund Ólöf Andradóttir og Egill Þórðarson. Fundarboð með dagskrá var sent félagsmönnum í pósti.
 

18.03.2010 Sameiginlegir atburðir Aðalfundur Kjarafélags TFÍ

Aðalfundur Kjarafélags Tæknifræðingafélags Íslands. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf. Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateig 9, og hefst kl. 17.
 

19.03.2010 Sameiginlegir atburðir Vettvangsferð BVFÍ

Byggingarverkfræðingadeild VFÍ (BVFÍ) býður félagsmönnum upp á vettvangsferð 19. mars um framkvæmdasvæði Háskólans í Reykjavík (HR) í Öskjuhlíð ásamt nýbyggingu sem hefur að hluta til verið tekin í notkun. Mæting er kl. 15.30 við skrifstofuaðstöðu Ístaks á staðnum. Tæknimenn Ístaks munu segja frá framkvæmdunum og fara yfir helstu tölur. Síðan verður farið í skoðunarferð um framkvæmdasvæðið og nýbyggingu. Að því loknu verður boðið upp á léttar veitingar. Hjálmaskylda er á svæðinu og þar sem takmarkað er til af hjálmum er fólk hvatt til að taka með sér sinn eigin hjálm. Skráning er hafin á skrifstofu félagsins á netfanginu: skrifstofa@verktaekni.is og í síma 535-9300. Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 17. mars nk.
 

23.03.2010 Sameiginlegir atburðir Aðalfundur SV

Aðalfundur Stéttarfélags verkfræðina verður haldinn 23. mars 2010 í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Fundurinn hefst kl. 17. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.
 

24.03.2010 Sameiginlegir atburðir Kynning á þjóðarviðaukum við þolhönnunarstaðla

Á samlokufundi VFÍ og TFÍ miðvikudaginn 24. mars verða kynnt drög að íslenskum þjóðarviðaukum við evrópska þolhönnunarstaðla. Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi Engjateigi 9 og hefst kl. 12.
 

25.03.2010 Sameiginlegir atburðir Aðalfundur Tæknifræðingafélags Íslands

Aðalfundur Tæknifræðingafélags Íslands, haldinn í Verkfræðingahúsi Engjateigi 9, kl. 17:00. Með vísan til 13. greinar félagslaga er félagsmönnum bent á að tillögur sem þurfa samþykki aðalfundar skulu hafa borist félaginu fyrir 15. febrúar.
 

25.03.2010 Sameiginlegir atburðir Heimsókn RVFÍ til Hafmyndar

Rafmagnsverkfræðingadeild VFÍ (RVFÍ) mun standa fyrir heimsókn til Hafmyndar fimmtudaginn 25. mars kl. 17:00. Hafmynd hefur frá árinu 1997 þróað og framleitt djúpfarið Gaviu sem nota má neðansjávar til ýmissa nota allt niður á 1000m dýpi. Mæting er kl. 17:00 að Vesturvör 29, 200 Kópavogur þar sem fyrirtækið er til húsa. Áhugasömum er bent á að skrá sig á skrifstofu VFÍ þannig að áætla megi fjölda. Netfang: skrifstofa@verktaekni.is Veffang Hafmyndar: www.gavia.is
 



Viðburðir

« mar 2010 »
SMÞMFFL
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica