Fyrirsagnarlisti
05.05.2010
Atburðir VFÍ
Fulltrúaráðsfundur VFÍ
Fulltrúaráðsfundur Verkfræðingafélags Íslands, haldinn í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, kl. 17:15.
06.05.2010
Sameiginlegir atburðir
Samlokufundur - ReMake Electric
Fulltrúar ReMake Electric kynna nýsköpun fyrirtækisins á sviði raföryggismála. ReMake hefur unnið til nýsköpunarverðlauna fyrir vöru sína Rafskynjarann. Nú síðast hlaut fyrirtækið Gulleggið, verðlaun Innovit fyrir nýsköpun 2010, áður hafði félagið sigrað í hugmyndasamkeppni N1 START09. Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, og hefst kl. 12. - Allir velkomnir. Félagsmenn fá ókeypis samloku og drykkjarföng, aðrir greiða sanngjarnt verð fyrir.
08.05.2010
Atburðir VFÍ
Aðalfundur BVFÍ - Landeyjarhöfn
Aðalfundur Byggingarverkfræðingadeildar Verkfræðingafélags Íslands, BVFÍ, verður haldinn laugardaginn, 8. maí n.k. um kl. 14.00. Fundurinn verður samhliða vettvangsferð félagsmanna í Landeyjarhöfn í Bakkafjöru. Skráning á skrifstofu VFÍ fyrir lok dags fimmtudaginn 6. maí.
20.05.2010, kl. 17:00 - 18:15
Sameiginlegir atburðir
Heimsókn KVFÍ til Auðar Capital
Heimsókn Kvennanefndar VFÍ til Auðar Capital. Kynning á hugmyndafræði og þjónustu fyrirtækisins.
25.05.2010
Atburðir VFÍ
Aðalfundur RVFÍ - Rafbílavæðing, umbreyttur bíll.
Aðalfundur RVFÍ 2010 verður haldinn í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, kl. 17. Að aðalfundarstörfum loknum mun Jón Björn Skúlason frá Vistorku (Icelandic New Energy) halda erindi um framtíðarorkugjafa. Einnig munu Guðjón Hugberg Björnsson, Hjörtur Már Gestsson og Hrafn Leó Guðjónsson útskriftarnemar við Háskólann í Reykjavík mæta á verkefni sínu og kynna. Það er bíll sem þeir hafa umbreytt þannig að hann gengur fyrir raforku í stað jarðefnaeldsneytis. Léttar veitingar verða í boði. Skráning á skrifstofu félaganna. Athugið að allir verkfræðingar eru velkomnir á kynninguna að aðalfundi loknum. Auglýsing var send til allra félagsmanna.