Fyrirsagnarlisti
25.05.2010
Atburðir VFÍ
Aðalfundur RVFÍ - Rafbílavæðing, umbreyttur bíll.
Aðalfundur RVFÍ 2010 verður haldinn í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, kl. 17. Að aðalfundarstörfum loknum mun Jón Björn Skúlason frá Vistorku (Icelandic New Energy) halda erindi um framtíðarorkugjafa. Einnig munu Guðjón Hugberg Björnsson, Hjörtur Már Gestsson og Hrafn Leó Guðjónsson útskriftarnemar við Háskólann í Reykjavík mæta á verkefni sínu og kynna. Það er bíll sem þeir hafa umbreytt þannig að hann gengur fyrir raforku í stað jarðefnaeldsneytis. Léttar veitingar verða í boði. Skráning á skrifstofu félaganna. Athugið að allir verkfræðingar eru velkomnir á kynninguna að aðalfundi loknum. Auglýsing var send til allra félagsmanna.