Fyrirsagnarlisti
30.09.2010 - 01.10.2010
Sameiginlegir atburðir
NIL fundur á Íslandi
Norrænn launafundur verkfræðinga og tæknifræðinga, NIL 2010, verður haldinn í Reykjavík á vegum TFÍ og SV. Um er að ræða árlega fundi þar starfsmenn norrænu félaganna bera saman bækur sínar um kjaramál.
13.10.2010
Atburðir VFÍ
Skotturnar komnar á kreik
Í ár er haldið upp á að 35 ár eru liðin frá fyrsta Kvennafrídeginum. Af þessu tilefni gerir Kvennannefnd VFÍ sér glaðan dag og fær góða gesti í heimsókn miðvikudaginn 13. október. Margrét Rögnvaldsdóttir situr í undirbúningshópi vegna kvennafrís/-verkfalls 2010. Hún segir frá Skottunum og fyrirhugaðri dagskrá dagana 24.-25. október. Þórdís Elva Þorvaldsdóttir gaf á síðasta ári út bókina Á Mannamáli. Þórdís fjallar um kynbundið ofbeldi á Íslandi og veltir fyrir sér orðræðu og fordómum í þessu sambandi. Allir félagsmenn VFÍ, TFÍ og SV eru velkomnir og fengu boð með tölvupósti. Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, og hefst kl. 17:15.
20.10.2010 - 22.10.2010, kl. 16:00 - 19:00
Sameiginlegir atburðir
Afmælisdagar TFÍ
Í tilefni af 50 ára afmæli Tæknifræðingafélags Íslands mun félagið standa fyrir afmælisdögum í Háskólanum í Reykjavík dagana 20.-22. október. Fluttir verða fyrirlestrar og afmælishátíðinni mun ljúka með mótttöku og verður boð sent öllum félagsmönnum.
27.10.2010, kl. 17:30 - 19:00
Sameiginlegir atburðir
Norðurlandsdeildir til Becromal
Norðurlandsdeildir VFÍ og TFÍ (NVFÍ og NTFÍ) efna til skoðunarferðar í verksmiðju Becromal við Krossanes, miðvikudaginn 27. október kl. 17:30. Mæting er við verksmiðjuna. Vinsamlegast látið vita af þátttöku hjá Stefáni stefan@no.is fyrir 25. október.