Viðburðir

Fyrirsagnarlisti

11.11.2010, kl. 19:00 - 23:00 Sameiginlegir atburðir Bridgekvöld VFÍ og TFÍ

Keppnin er ætluð félagsmönnum VFÍ og TFÍ og gestum þeirra. Mæting er kl. 19:00 og hefst spilamennskan kl. 19:30 en ráðgert að henni ljúki um kl. 23:00. Keppnisformið er tvímenningur og veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin. Nánari útfærsla verður ákveðin þegar þátttaka liggur fyrir. Keppnisstjóri verður Þorlákur Jónsson, vélaverkfræðingur. Væntanlegir þátttakendur eru beðnir að skrá sig, ekki seinna en fyrir hádegi 9. nóvember. Vinsamlega tiltakið nafn, félag, netfang, síma og hvort þeir eru einir eða með makker (og tiltaka þá hver hann er). Athugið að síðast komust færri að en vildu og því gildir að skrá sig sem fyrst. Keppnisgjald er kr. 500 fyrir félagsmenn VFÍ og TFÍ en kr. 1500 fyrir utanfélagsmenn. Kaffi og gos verður til sölu á hóflegu verði. Allir velkomnir. Skráning: skrifstofa@verktaekni.is
 

12.11.2010, kl. 12:00 - 13:00 Sameiginlegir atburðir Verkfræðiráðgjöf tengd áliðnaði – tækifæri

Samlokufundur. Símon Þorleifsson, framkvæmdastjóri verkfræðiþjónustu HRV mun kynna verkefni fyrirtækisins og framtíðarhorfur. HRV er verkfræðifyrirtæki í eigu Mannvits og Verkís og hefur sérhæft sig í verkefnum fyrir áliðnaðinn hér heima og erlendis. HRV vinnur samkvæmt EPCM hugmyndafræðinni (Engineering, Procurement and Construction Management) Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9 og hefst kl. 12. Að venju fá félagsmenn samlokur og drykki án endurgjalds, aðrir greiða sanngjarnt verð fyrir. Allir velkomnir.
 

17.11.2010 Atburðir VFÍ Verkið verður keypt en dyggðin ekki

Ráðstefna Verkfræðingafélags Íslands í Norræna húsinu kl. 15-18. Fjallað verður um verkfræðina og siðferðileg álitamál. Tilefni ráðstefnunnar er að nú liggja fyrir drög að nýjum siðareglum félagsins en vinna við endurskoðun eldri reglna hófst fyrir réttu ári. Lesa meira
 



Viðburðir

« nóv 2010 »
SMÞMFFL
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica