Viðburðir

Fyrirsagnarlisti

06.02.2010 Atburðir VFÍ Árshátíð VFÍ

Árshátíð Verkfræðingafélags Íslands í Súlnasal Hótels Sögu. Skemmtidagskrá. Hátíðarkvöldverður. Hljómsveit leikur fyrir dansi. Miðapantanir og nánari upplýsingar á skrifstofunni í síma 535 9300. Netfang: skrifstofa@verktaekni.is
 

09.02.2010 Sameiginlegir atburðir Kynning frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands - Efst á baugi

Gestir á Samlokufundi þriðjudaginn 9. febrúar verða Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri NMÍ og Sigríður Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri á NMÍ og rekstrarstjóri frumkvöðlaseturs. Þau munu kynna það sem er efst á baugi hjá stofnuninni og árangur af samstarfssamningi félaga verkfræðinga og tæknifræðinga og NMÍ. Jafnframt munu þau kynna möguleika á styrkjum til nýsköpunar og frumkvöðlastarfsemi. Þess má geta að starfsmenn NMÍ, með Þorstein í fararbroddi, hafa farið víða um land undanfarið með námskeiðið Orkubóndann sem hefur slegið í gegn. Áhugavert verður að heyra reynslusögur af því námskeiði ásamt fleiri góðum hugmyndum sem eru að gerjast. Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Félagsmenn fá samlokur og drykki án endurgjalds, aðrir greiða sanngjarnt verð fyrir. Allir velkomnir.
 

11.02.2010 Sameiginlegir atburðir Staðan í samningum við FRV

Samninganefndir KTFÍ og SV við FRV boða til sameiginlegs kynningarfundar fimmtudaginn 11. febrúar kl. 17:15, að Engjateigi 9. Dagskrá fundarins: - Staða samninga. - Umræður. -Túlkun nokkurra ákvæða kjarasamnings félaganna við FRV. - Önnur mál.
 

23.02.2010 Sameiginlegir atburðir Fyrirlestur um viðskiptasiðfræði

Hádegisnámskeið um viðskiptasiðfræði. Fyrirlesari er Stefán Einar Stefánsson, viðskiptasiðfræðinur við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Námskeiðinu er ætlað að gera þátttakendum betur kleift að vega og meta þau álitamál sem verða á vegi þeirra í viðskiptum og rekstri. Farið er ofan í helstu kenningar viðskiptasiðfræðinnar og fjallað um hvernig hægt er að hagnýta þær í rekstri og stjórnun. Námskeiðið er í boði Félags stjórnenda og sjálfstætt starfandi í TFÍ (STFÍ) en allir félagsmenn TFÍ, SV og VFÍ eru velkomnir.
 

23.02.2010 Sameiginlegir atburðir Aðalfundur STFÍ

Aðalfundur Félags stjórnenda og sjálfstætt starfandi í TFÍ (STFÍ) verður haldinn 23. febrúar kl. 13:15 í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.
 

24.02.2010 Sameiginlegir atburðir Hóf Kvennanefndar VFÍ

Hóf Kvennanefndar VFÍ til heiðurs Áslaugu Haraldsdóttur, vélaverkfræðingi sem nýverið var sæmd heiðursmerki VFÍ. Hófið verður í Verkfræðinahúsi, Engjateigi 9, kl. 17-19..
 

25.02.2010 Sameiginlegir atburðir Bridgekvöld VFÍ og TFÍ

Bridgekvöld í Verkfræðingahúsi að Engjateigi 9, fimmtudaginn 25. febrúar n.k. Keppnin er ætluð félagsmönnum VFÍ og TFÍ og gestum þeirra. Mæting er kl. 19:00 og hefst spilamennskan kl. 19:30 en ráðgert að henni ljúki um kl. 23:00. Keppnisformið er tvímenningur og veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin. Nánari útfærsla verður ákveðin þegar þátttaka liggur fyrir. Keppnisstjóri verður Þorlákur Jónsson, vélaverkfræðingur. Væntanlegir þátttakendur eru beðnir að skrá sig, ekki seinna en fyrir hádegi 23. febrúar. Vinsamlega tiltakið nafn, félag, netfang, síma og hvort þeir eru einir eða með makker (og tiltaka þá hver hann er). Keppnisgjald er kr. 500 fyrir félagsmenn VFÍ og TFÍ en kr. 1500 fyrir utanfélagsmenn. Kaffi og gos verður til sölu á hóflegu verði. Skráning: skrifstofa@verktaekni.is
 

26.02.2010, kl. 8:00 - 9:00 Atburðir VFÍ Heiti potturinn - morgunfundur VFÍ

Júlíus Sólnes, verkfræðingur gestur í Heita pottinum. Hann mun ræða möguleika íslenskra tæknimanna á því að koma að uppbyggingu á jarðskjálftasvæðum, þá sérstaklega Haítí. Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, kl. 8-9. Boðið verður upp á kaffi og rúnstykki. Vinsamlega skráið ykkur sem fyrst, eigi síðar en um hádegi á fimmtudag.
 



Viðburðir

« feb 2010 »
SMÞMFFL
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28            

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica