Viðburðir
Kynningarfundur á Austurlandi
Árni B. Björnsson kynnir starfsemi félagannna, sérstaklega í ljósi sameiningar VFÍ og SV síðastliðið sumar og stöðu landshlutadeilda. Ragna Haraldsdóttir, verkefnastjóri hjá Endurmenntun Háskóla Íslands, kynnir stuttlega starfsemi EHÍ og þá möguleika sem félagsmönnum bjóðast til endurmenntunar. Fjallað verður ýmsa þætti sem snúa að námskeiðahaldi, s.s. skipulag námskeiða, aukið framboð fjarnámskeiða, möguleikann á að fá kennara á staðinn til kennslu og fleira. Óskað verður eftir tillögum frá félagsmönnum um áhugavert efni.
Fyrirspurnir og umræður.
Vilji er til þess að blása lífi í starf austurlandsdeilda félaganna og hvetjum við alla verkfræðinga og tæknifræðinga að mæta. Léttar veitingar í boði félaganna.
