Viðburðir

Fyrirsagnarlisti

05.02.2011 Sameiginlegir atburðir Árshátíð VFÍ

Árshátíð Verkfræðingafélags Íslands verður haldinn á Hótel Sögu laugardaginn 5. febrúar. Óbreytt miðaverð frá fyrra ári, kr. 7.500.- Miðapantanir og nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins.
 

16.02.2011 Sameiginlegir atburðir Samlokufundur um ÍST 30:2003

Kynntar verða tillögur vinnuhóps sem unnið hefur að endurskoðun staðalsins ÍST 30:2003 - Almennir útboðs- og samningsskilmálar um verkframkvæmdir. Frummælendur verða Rögnvaldur Gunnarsson, verkfræðingur og formaður vinnuhópsins og Arngrímur Blöndahl verkefnisstjóri bygginga- og gæðamála hjá Staðalaráði Íslands. Fundurinn verður kl. 12-13 í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Allir verkfræðingar og tæknifræðingar velkomnir. Að venju fá félagsmenn samloku og drykkjarföng án endurgjalds, aðrir greiða sanngjarnt verð fyrir.
 

17.02.2011 Sameiginlegir atburðir KVFÍ heimsækir Rannsóknasetur í kerfislíffræði

Kvennanefnd Verkfræðingafélags Íslands (KVFÍ) mun standa fyrir heimsókn í Rannsóknasetur í kerfislíffræði við Háskóla Íslands fimmtudaginn 17. febrúar kl. 16:00.   Í kerfislíffræði verður til þverfaglegt samstarf verkfræðinga og lækna. Þar sameina þessi tvö fræðasvið krafta sína til að skyggnast inn í framtíðina í leit að lausnum. Kerfislíffræði er gott dæmi um hin fjölbreytilegu störf verkfræðinga.  Lesa meira
 



Viðburðir

« feb 2011 »
SMÞMFFL
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28          

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica