Fyrirsagnarlisti
01.03.2012, kl. 12:00 - 13:00
Sameiginlegir atburðir
Stefnumótunarfærni
Fyrirlestraröð STFÍ
Fyrirlesturinn fjallar um eitt og annað sem gagnlegt er að hafa í huga þegar kemur að því að marka stefnu fyrir fyrirægi, félög og stofnanir. Meðal annars er fjallað um ólíkar stefnumótunaraðferðir, aðferðir til að rýna starfsemina og gera úttektir og markmiðasetningu.
08.03.2012
Sameiginlegir atburðir
Framtíðarnýting orkuauðlinda
Ráðstefna á vegum VFÍ haldin á Grand Hótel Reykjavík. Dagskráin verður birt hér á vefnum innan tíðar.
10.03.2012
Sameiginlegir atburðir
Aðalfundir NTFÍ og NVFÍ
Aðalfundir NTFÍ og NVFÍ verður haldinn þann 10. mars 2012 kl 18:00 í matsal Norðurorku að Rangárvöllum. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf. Að aðalfundi loknum verður Síldarkvöld sem verður með hefðbundnu sniði.
12.03.2012
Sameiginlegir atburðir
Hönnun snjóflóðavarnagarða
BVFÍ heldur samlokufund um hönnun snjóflóðavarnagarða þriðjudaginn 13. mars, kl. 12, í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Ofanflóðasjóður, yfirlit um verkefni og hlutverk - Hafsteinn Pálsson, starfsmaður stjórnar Ofanflóðasjóðs. Straumfræðileg hönnun snjóflóðavarnagarða - Kristín Martha Hákonardóttir, verkfræðingur hjá Verkís. Hönnun og framkvæmdir við varnarmannvirki - Jón Skúli Indriðason, verkfræðingur hjá EFLU.
22.03.2012
Sameiginlegir atburðir
Aðalfundur VFÍ
Aðalfundur Verkfræðingafélags Íslands. Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9 og hefst kl. 17.
27.03.2012, kl. 12:00 - 13:00
Sameiginlegir atburðir
Samskiptafærni
Fyrirlestraröð STFÍ
Fyrirlesturinn fjallar um eitt og annað sem gagnlegt er að hafa í huga þegar kemur að því eiga samskipti við aðra og fá þá til að vinna með sér í teymum. Meðal annars er fjallað um ólíkar aðferðir í samskiptum og um eðli hópa og teymisvinnu.
28.03.2012
Sameiginlegir atburðir
Aðalfundur TFÍ
Aðalfundur Tæknifræðingafélags Íslands. Fundurinn verður haldinn í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9 og hefst kl. 19. Sama dag verða aðalfundir STFÍ og KTFÍ og hefjast þeir kl. 17.
28.03.2012
Sameiginlegir atburðir
Aðalfundur STFÍ
Aðalfundur Stjórnenda og sjálfstætt starfandi í TFÍ (STFÍ). Haldinn í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9 og hefst kl. 17. Aðalfundur TFÍ hefst kl. 19.
28.03.2012
Sameiginlegir atburðir
Aðalfundur KTFÍ
Aðalfundur Kjarafélags Tæknifræðingafélags Íslands (KTFÍ). Haldinn í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, og hefst kl. 17. Aðalfundur TFÍ hefst kl. 19.