Viðburðir

Fyrirsagnarlisti

12.04.2012 Sameiginlegir atburðir Samlokufundur: Nýi Landspítalinn

Landspítali til framtíðar. Gísli Georgsson verkefnisstjóri heilbrigðis- og upplýsingatækni og Jóhannes Gunnarsson læknisfræðilegur verkefnisstjóri hjá NLSH fjalla um forsendur, innra skipulag og tæknilausnir í Nýjum Landspítala.
 

18.04.2012 Sameiginlegir atburðir Háspennulínur og jarðstrengir

Rafmagnsverkfræðingadeild Verkfræðingafélags Íslands (RVFÍ) stendur fyrir málþingi um háspennustrengi og línur þann 18. apríl klukkan 13:00 á Grand Hótel Reykjavík, Gullteig. Margt hefur verið ritað og rætt um lagningu strengja í stað háspennulína og er þetta málþing sett á laggirnar til að nálgast viðfangsefnið frá ýmsum hliðum. Lagt er upp með að umræðan sé óhlutdræg og eins opin og best verður á kosið. Nú nýlega samþykkti Alþingi þingsályktunartillögu þar sem Iðnaðarráðuneytið í samstarfi við Umhverfisráðuneytið er falið að skipa nefnd sem móta skal stefnu um lagningu raflína í jörð og þau sjónarmið sem taka ber mið af hverju sinni við ákvarðanir þar um.
 

19.04.2012 Sameiginlegir atburðir 100 ára afmælishátíð VFÍ

100 ára afmælishátíð Verkfræðingafélags Íslands í Hörpunni. Allir félagsmenn og velunnarar VFÍ velkomnir.
 

19.04.2012 Atburðir VFÍ Afmælishlaup VFÍ

Afmælishlaup VFÍ í samstarfi við Víðavangshlaup ÍR. Nánari upplýsingar hér á vefnum í frétt dag. 4. apríl.
 



Viðburðir

« apr 2012 »
SMÞMFFL
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica