Beint í efni
Umsögn

Aðgerðir til eflingar þekk­ing­ar­sam­fé­lags til ársins 2025

Mál nr. 50/2023. (Dags. 15. mars 2023). Þingsályktunartillaga.
Ráðgjöf við gerð umsagnar: Dr. Kristján Leósson.

Á í klakaböndum blátt og ísilagt.

Í umsögninni er sjónum fyrst og fremst beint að þeim atriðum sem að félaginu snúa, þ.e.a.s. menntun í verkfræði, tæknifræði, öðrum tæknigreinum og raunvísindum.

Í umsögn VFÍ segir meðal annars:

Verkfræðingafélagið fagnar því að ráðherra leggi áherslu á að bæta gæði háskólanáms hérlendis. Með nýrri skiptingu ráðuneyta er hins vegar einsýnt að mörg þeirra vandamála sem rædd eru í þingsályktunartillögunni þarf að leysa á fyrri skólastigum og falla þau því undir annað ráðuneyti. Hér má sérstaklega nefna hlutfall nemanda sem útskrifast úr vísinda- og tæknigreinum á Íslandi, sem hefur um árabil verið mjög lágt í alþjóðlegu samhengi. Félagið telur að nýlegar aðgerðir á borð við styttingu framhaldsskólans, aukna áherslu á opið val í námi á framhaldsskólastigi og sameiningu raungreina á grunnskólastigi séu líklegri til að lækka frekar en hækka hlutfall þeirra nemenda sem uppfylla inngangskröfur í verkfræði- og raunvísindadeildir háskólanna. Ef ekki kemur til bættur undirbúningur verður hlutfall nemenda á háskólastigi ekki aukið nema með því að lækka aðgangskröfur, sem seint verður talið líklegt til þess að auka gæði háskólanámsins.

Umsögnin.

Verkfræðingafélag Íslands vill taka þátt í stefnumótun, lagasetningu og ákvarðanatöku. Félagið er virkur umsagnaraðili um málefni er tengjast hagsmunum félagsmanna og samfélagsins í heild.

Á vef VFÍ eru birtar umsagnir frá árinu 2023. Eldri umsagnir má nálgast í Samráðsgátt stjórnvalda, einnig má hafa samband við skrifstofu VFÍ.