Styrkir og sjóðir
Verkfræðingafélagið rekur öfluga sjóði fyrir félagsmenn á almennum og opinberum vinnumarkaði. Aðild að sjóðum er ekki innifalin í félagsgjaldi. Vinnuveitandi skilar iðgjöldum í sjóði samkvæmt kjarasamningum.

Sjóðfélagar eiga mikilvæg réttindi í sjóðum VFÍ sem sjálfsagt er að nýta.
Öflugir sjóðir VFÍ veita styrki í veikindum, til heilsueflingar og endurmenntunar. Réttindi eru háð því að iðgjöld séu í skilum.

