Í umsögn VFÍ er gagnrýnt að ráðið verði eingöngu skipað fulltrúum sem eru í vinnu hjá stjórnvöldum og að framlag nefndarmanna muni einkum ráðast af áhuga og þekkingu hvers og eins á málefninu.
Í umsögninni segir meðal annars:
Að vísu er kveðið á um það að fulltrúar í ráðinu „skuli hafa sérfræðimenntun eða starfsreynslu á sviði net- og upplýsingaöryggis sem telst fullnægjandi að mati ráðherra“. Ólíklegt er að ráðuneytin og stofnanir þeirra hafi marga starfsmenn sem hafa sérfræðimenntun á þessu sviði eða teljandi starfsreynslu. Þetta er svið þar sem þörf er fyrir mikla sérmenntun sem bæta þarf ofan á grunnmenntun á sviði upplýsingatækni.
Verkfræðingafélag Íslands vill taka þátt í stefnumótun, lagasetningu og ákvarðanatöku. Félagið er virkur umsagnaraðili um málefni er tengjast hagsmunum félagsmanna og samfélagsins í heild.
Á vef VFÍ eru birtar umsagnir frá árinu 2023. Eldri umsagnir má nálgast í Samráðsgátt stjórnvalda, einnig má hafa samband við skrifstofu VFÍ.
