Beint í efni
Umsögn

Fé­laga­frelsi á vinnu­mark­aði

313 mál, 154. löggjafarþing 2023-2024. (Dags. 6. nóvember 2023).

Maður í vinnugalla í tengivirki.

Í umsögn VFÍ segir meðal annars:

Ef tilgangur flutningsmanna frumvarpsins er að tryggja félagafrelsi og standa vörð um réttindi launamanna, þá er frumvarpið verulega gallað. Þær lagabreytingar, sem lagðar eru til, eru þvert á móti til þess fallnar að veikja stöðu launamanna á vinnumarkaði og vega að stéttarfélögum sem hér starfa. Í greinargerð með frumvarpi er að finna ýmsar fullyrðingar um gildandi reglur á íslenskum vinnumarkaði sem gefa til kynna að höfundar þekki ekki, eða skilji ekki, til hlítar umfjöllunarefnið. Í greinargerð er t.a.m. fullyrt að „[v]arla [sé] unnt að líta svo á að launamenn á Íslandi hafi raunverulegt frelsi til að ákveða félagsaðild sína sjálfir.“ Þessi fullyrðing stenst ekki skoðun. Hið rétta er að félagafrelsið er varið í 74. gr. stjórnarskrár og launamenn hafa frelsi til að velja sér félag, eftir því sem lög hvers félags segja, eða standa utan félaga.

Umsögnin.

Verkfræðingafélag Íslands vill taka þátt í stefnumótun, lagasetningu og ákvarðanatöku. Félagið er virkur umsagnaraðili um málefni er tengjast hagsmunum félagsmanna og samfélagsins í heild.

Á vef VFÍ eru birtar umsagnir frá árinu 2023. Eldri umsagnir má nálgast í Samráðsgátt stjórnvalda, einnig má hafa samband við skrifstofu VFÍ.