Verkfræðingafélag Íslands tekur undir markmið frumvarpsins um að skapa heildstæða umgjörð um stærri fjárfestingar ríkisins og fagnar áherslu á vandaðan undirbúning, skýra ábyrgð, verkefnastjórnsýslu og faglegt mat fjárfestingarkosta.
VFÍ leggur áherslu á að fagleg og tæknileg sérþekking sé nýtt frá fyrstu stigum fjárfestingarverkefna. Mikilvægar ákvarðanir um kostnað, áhættu og útfærslu verkefna byggjast á forsendum sem mótaðar eru snemma í ferlinu.
Í umsögninni er jafnframt lögð áhersla á skýrar hæfiskröfur til þeirra sem annast óháða rýni og að samsetning fagráða og rýniteyma taki mið af eðli og umfangi verkefna. Félagið telur einnig mikilvægt að forðast óþarfa tvíverknað og nýta þá þekkingu og reynslu sem þegar er til staðar hjá opinberum aðilum.
VFÍ bendir jafnframt á mikilvægi þess að niðurstöður skilamats og upplýsingar um fyrri fjárfestingarverkefni séu nýttar markvisst til að bæta undirbúning og ákvarðanatöku vegna nýrra verkefna.
Helstu tillögur VFÍ
- Umfang greiningar og rýni. Kröfur um greiningu og rýni taki mið af fjárhagslegu umfangi, flækjustigi og áhættu verkefna.
- Fagleg og tæknileg sérþekking. Viðeigandi sérþekking verði tryggð frá fyrstu stigum verkefna, meðal annars við valkostagreiningu, kostnaðarmat og áhættumat.
- Skýr ábyrgð og verkaskipting. Hlutverk og ábyrgð þeirra sem koma að fjárfestingarferlinu verði skýr á öllum stigum þess.
- Hæfiskröfur og óháð rýni. Gerðar verði skýrar kröfur um menntun, sérþekkingu og reynslu rýnenda og tryggt að fagráð og rýniteymi búi yfir viðeigandi þekkingu.
- Forðast óþarfa tvíverknað. Tekið verði mið af verkefnastjórnunar- og rýniferlum sem þegar eru fyrir hendi hjá opinberum aðilum.
- Áhrif rýni á ákvarðanatöku. Skýrt verði hvernig niðurstöður rýni nýtast við ákvarðanir og að rökstyðja þurfi ákvarðanir um framhald verkefna þrátt fyrir verulegar athugasemdir.
- Samræmd fagleg aðferðafræði. Handbók um fjárfestingar ríkisins byggi á viðurkenndum viðmiðum og verði endurskoðuð reglulega.
- Skilamat og nýting reynslu. Niðurstöður fyrri verkefna verði nýttar með skipulegum hætti til að bæta undirbúning og ákvarðanatöku um framtíðarfjárfestingar.
Umsögn VFÍ um fjárfestingar ríkisins
Verkfræðingafélag Íslands vill taka þátt í stefnumótun, lagasetningu og ákvarðanatöku. Félagið er virkur umsagnaraðili um málefni er tengjast hagsmunum félagsmanna og samfélagsins í heild.
Á vef VFÍ eru birtar umsagnir frá árinu 2023. Eldri umsagnir má nálgast í Samráðsgátt stjórnvalda. Einnig má hafa samband við skrifstofu VFÍ.
