Verkfræðingafélagið skilaði umsögn um drög að þingsályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku.
Í lokaorðum umsagnarinnar segir: VFÍ styður meginstefnu draganna um að styrkja flutningskerfi raforku, auka afhendingaröryggi og skapa betri forsendur fyrir atvinnuþróun, orkuskipti og aukið áfallaþol samfélagsins. Til þess þurfa markmið að vera skýr og mælanleg og ákvarðanir að byggjast á faglegu heildarmati, gagnsæi og skýrri ábyrgð.
Fyrirhuguð uppbygging flutningskerfis raforku sýnir jafnframt í hnotskurn mikilvægi tæknimenntunar fyrir samfélagið. Hönnun, uppbygging, rekstur og viðhald traustra grunninnviða byggjast á sérþekkingu verkfræðinga, tæknifræðinga og annarra tæknimenntaðra sérfræðinga. Til að markmið stefnunnar náist þarf því ekki aðeins skýra stefnu og nægilegt fjármagn heldur einnig að tryggja þá þekkingu og hæfni sem verkefnin krefjast.
Samantekt: Tillögur Verkfræðingafélags Íslands
VFÍ leggur til að:
- Undirbúnings-, leyfisveitingar- og kæruferlar vegna mikilvægra innviðaframkvæmda verði einfaldaðir og samhæfðir, ábyrgð skýrð og sett skýr tímamörk, án þess að dregið verði úr gæðum faglegs mats eða nauðsynlegu samráði.
- Stefnunni fylgi skýrar tímasetningar, ábyrgðarskipting og mælikvarðar, meðal annars um flutnings- og afhendingargetu, afhendingaröryggi og áfallaþol.
- Forsendur og aðferðafræði við samanburð tæknilegra valkosta verði samræmdar og gagnsæjar og mat á því hvort lausnir séu „tæknilega mögulegar“ byggist á skýrum og skjalfestum verkfræðilegum forsendum.
- Breytingar á tímasetningu markmiða um afhendingaröryggi og tvítengingu afhendingarstaða verði studdar skýru mati á áhrifum á afhendingaröryggi og samfélagslega áhættu.
- Við uppbyggingu flutningskerfisins verði áfram lögð skýr áhersla á þjóðhagslega hagkvæmni og kostnað raforkunotenda, jafnframt því sem tekið verði mið af kostnaði og töpuðum tækifærum vegna ófullnægjandi flutningsgetu og tafa á uppbyggingu.
- Tryggt verði að nægileg fagleg og tæknileg sérþekking, mannauður og framkvæmdageta séu til staðar við undirbúning, leyfisveitingar, mat, framkvæmd og rekstur flutningskerfisins. Mikilvægt er að nýta þá sérþekkingu sem fyrir hendi er, bæði hjá viðkomandi aðilum og sérhæfðum ráðgjafar- og þjónustufyrirtækjum.
Umsögn VFÍ um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku
Verkfræðingafélag Íslands vill taka þátt í stefnumótun, lagasetningu og ákvarðanatöku. Félagið er virkur umsagnaraðili um málefni er tengjast hagsmunum félagsmanna og samfélagsins í heild.
Á vef VFÍ eru birtar umsagnir frá árinu 2023. Eldri umsagnir má nálgast í Samráðsgátt stjórnvalda, einnig má hafa samband við skrifstofu VFÍ.
