Verkfræðingafélag Íslands skilaði umsögn um drög að nýrri reglugerð um Loftslags- og orkusjóð. Félagið tekur undir markmið um einföldun regluverks og skýrari aðgreiningu samkeppnisstyrkja og beinna stuðningsaðgerða.
VFÍ bendir á að sjóðurinn sé mikilvægt fjármögnunartæki fyrir tækni- og verkfræðiverkefni á sviði orkuskipta, hringrásarhagkerfis og orkunýtingar. Félagið leggur því áherslu á faglegt mat umsókna, skýrar reglur og fyrirsjáanleika fyrir umsækjendur.
Í umsögninni er meðal annars fjallað um hlutverk fagráða, styrki til lengri tíma og mikilvægi þess að frumkvöðlar og sprotafyrirtæki hafi áfram raunhæfa möguleika á stuðningi við þróun nýrrar loftslags- og orkutækni.
Helstu tillögur VFÍ
- Fagleg sérþekking við mat umsókna. Fyrirkomulag fagráða verði skýrt og tryggt að sérþekking þeirra taki mið af eðli verkefna.
- Styrkir til lengri tíma. Skýrt verði hvernig þriggja ára styrkveitingar samræmast því að samningar séu almennt gerðir til eins árs.
- Fyrirsjáanleiki styrkja. Upplýsingar um styrkhlutföll og fjárhæðir liggi fyrir með nægum fyrirvara.
- Stuðningur við nýsköpun. Tryggt verði að breytingarnar dragi ekki úr stuðningi við frumkvöðla, sprotafyrirtæki og þróun nýrra tæknilausna.
- Lánveitingar sjóðsins. Reglugerðin kveði á um fyrirkomulag lánveitinga í samræmi við lög um sjóðinn.
Umsögn VFÍ um drög að reglugerð um Loftslags- og orkusjóð
Verkfræðingafélag Íslands vill taka þátt í stefnumótun, lagasetningu og ákvarðanatöku. Félagið er virkur umsagnaraðili um málefni er tengjast hagsmunum félagsmanna og samfélagsins í heild.
Á vef VFÍ eru birtar umsagnir frá árinu 2023. Eldri umsagnir má nálgast í Samráðsgátt stjórnvalda. Einnig má hafa samband við skrifstofu VFÍ.
