Í umsögn VFÍ segir meðal annars:
Verkfræðingafélag Íslands (VFÍ) fagnar útgáfu Aðgerðaáætlunar stjórnvalda í loftslagsmálum þar sem lagðar eru til 150 loftslagsaðgerðir og loftslagsverkefni. Aðgerðaráætlunin er mun ítarlegri og umfangsmeiri en fyrri áætlun og talsverður metnaður lagður í að ná utan um þessi flóknu mál.
Aðgerðir í loftslagsmálum eru langtímaverkefni sem kalla á breytta hugsun og breytta nálgun á mörgum sviðum. Ný tækni og breytt vinnubrögð leika lykilhlutverk í fjölda þeirra verkefna sem framundan eru. Framkvæmd ýmissa aðgerða í áætluninni eru ekki á borði stjórnvalda heldur í höndum fyrirtækja og sveitarfélaga þar sem verkfræðingar og tæknifræðingar eru gjarnan í lykilhlutverkum. Verkfræðingafélagið fagnar því að atvinnulífið hafi tekið virkan þátt í mótun í aðgerðanna og hafi skilgreint hlutverk við að innleiða þær.
Verkfræðingafélag Íslands vill taka þátt í stefnumótun, lagasetningu og ákvarðanatöku. Félagið er virkur umsagnaraðili um málefni er tengjast hagsmunum félagsmanna og samfélagsins í heild.
Á vef VFÍ eru birtar umsagnir frá árinu 2023. Eldri umsagnir má nálgast í Samráðsgátt stjórnvalda, einnig má hafa samband við skrifstofu VFÍ.
