Beint í efni
Umsögn

Reglur um fjár­fram­lög til háskóla

Reglur um fjárframlög til háskóla.
Mál nr. 192/2023. (Dags. 14. nóvember 2023).

Byggingar HR.

Í umsögn VFÍ segi meðal annars:

Félagið hefur alla tíð látið sig menntunarmál miklu varða og hefur um langt árabil átt samtal við stjórnvöld um mikilvægi svokallaðra STEM-greina (Science, Technology, Engineering, Mathematics) og hve mikilvægt er að efla nám í þeim. 

Áhersla stjórnvalda nú er að efla nám í þessum greinum og ber að fagna því sérstaklega.

Það veldur hins vegar vonbrigðum að í tillögu að nýjum reglum, ásamt tilheyrandi reiknilíkani, er ekki gert ráð fyrir auknu fjármagni í þennan flokk náms. 

Þvert á móti er niðurstaðan veruleg skerðing á framlögum til náms í tæknifræði, sem og grunnáms í verkfræði, þar sem framlag vegna útskriftarnema fylgir ekki sama margföldunarstuðuli og framlag vegna námsframvindu. Þetta á sérstaklega við um nám í Háskólanum í Reykjavík, sem verður fyrir 25% skerðingu til að standa að menntun nemenda. 

Tækninám krefst aðgengis að dýrri aðstöðu til kennslu verklegra greina, mikillar verkefnavinnu og sérhæfðra námskeiða. Þessar breytingar á fjármögnun munu því grafa undan gæðum kennslu í þessum greinum, þvert á yfirlýstar áherslur stjórnvalda.

Umsögnin.

Verkfræðingafélag Íslands vill taka þátt í stefnumótun, lagasetningu og ákvarðanatöku. Félagið er virkur umsagnaraðili um málefni er tengjast hagsmunum félagsmanna og samfélagsins í heild.

Á vef VFÍ eru birtar umsagnir frá árinu 2023. Eldri umsagnir má nálgast í Samráðsgátt stjórnvalda, einnig má hafa samband við skrifstofu VFÍ.