Beint í efni
Grein

Risa­verk­efni stærðin skiptir máli - Gögn frá ráð­stefnu

Ráðstefna VFÍ haldin 20. febrúar 2025.

Götur í Reykjavík loftmynd

Þann 20. febrúar 2025 stóð Verkfræðingafélag Íslands fyrir ráðstefnu um risaframkvæmdir á Íslandi og mikilvægi vandaðrar verkefnastjórnsýslu (e. Project governance).

Á ráðstefnunni var kastljósi beint að opinberum stórframkvæmdum sem rannsóknir sýna að fara mjög oft langt fram úr kostnaðar- og tímaáætlunum. Ráðstefnan var haldin í samstarfi við fjármálaráðuneytið, IMaR ráðstefnuna, CORDA og MPM námið í Háskólanum í Reykjavík, Félag ráðgjafarverkfræðinga, Vegagerðina og Betri samgöngur. Markmiðið var að leiða saman stjórnsýslu, atvinnulíf og fræðasamfélag.

Kastljósi var sérstaklega beint að samgönguverkefnum hins svokallaða samgöngusáttmála og nauðsyn þess að verkefnastjórnsýsla sé vönduð í slíkum verkefnum. Fyrirlesarar voru innlendir og erlendir sérfræðingar, m.a. frá fjármálaráðuneyti Noregs.

Mikill áhugi er á efni frá ráðstefnunni og má því nálgast það hér í fagumræðu VFÍ.

The Norwegian State Project model
Ingvild Melvær Hanssen sérfræðingur í norska fjármálaráðuneytinu.

Following the „Norwegian way“. – Experiences gained and lessons learned
Dr. Ole Jonny Klakegg, prófessor við Háskólann í Þrándheimi.

PROGRAM DENMARK: Transforming Public Projects through Research - Insights from Denmark and Norway.
Dr. Per Svejvig, prófessor við Háskólann í Árósum.

Vegagerðin – Verkefnastjórnsýsla risaverkefna
Bryndís Friðriksdóttir, svæðisstjóri höfuðborgarsvæðis hjá Vegagerðinni.

Betri samgöngur – Mat áhættu við áætlanagerð.
Dr. Þröstur Guðmundsson, forstöðumaður verkefna og áætlana hjá Betri samgöngum.