2025 er þess minnst að 30 ár eru frá því að hin mannskæðu snjóflóð féllu í Súðavík og á Flateyri árið1995. Atburðirnir ullu ekki aðeins miklu manntjóni heldur einnig umtalsverðu eignatjóni og röskun á lífi fólks og starfsemi fyrirtækja.
Frá því snjóflóðin féllu á byggðirnar hefur verið unnið markvisst að byggingu varnarmannvirkja og aðlögun samfélaga að þeirri ógn sem þessi náttúruvá er.
Verkfræðingafélag Íslands (VFÍ) minntist þessara atburða með því að halda SNOW ráðstefnu á Ísafirði dagana 30. september til 3. október 2025.
Áður hefur VFÍ staðið fyrir samskonar ráðstefnum á Siglufirði 2019 og á Egilsstöðum 2008.
