Verkfræðingafélag Íslands hefur skilað umsögn um drög að þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030. Félagið fagnar aukinni áherslu á stærðfræði, raunvísindi og tæknimenntun og telur mikilvægt að fyrirhugaðar aðgerðir skili raunverulegum framförum í þekkingu og hæfni nemenda.
VFÍ tekur sérstaklega undir áform um fjölgun kennslustunda í stærðfræði og náttúrugreinum, útgáfu nýs námsefnis og mótun viðmiðunarbrautar í STEM-greinum í framhaldsskólum. Félagið leggur jafnframt áherslu á að tryggja nægilegt framboð hæfra kennara, samfellu milli skólastiga og góðan undirbúning nemenda fyrir háskólanám í verkfræði, tæknifræði og raunvísindum.
Í umsögninni er einnig fjallað um mikilvægi samræmds námsmats, ábyrgrar notkunar gervigreindar í menntakerfinu og þess að efla áhuga barna og ungmenna á vísindum og tækni.
VFÍ vekur jafnframt athygli á því að félagið var ekki meðal þeirra 39 aðila sem sérstaklega var boðið til samráðs um tillöguna. Félagið telur mikilvægt að fagfélög með sérþekkingu á viðkomandi sviðum fái aðkomu að stefnumótun og útfærslu aðgerða.
Helstu tillögur VFÍ
- Markmið um námsárangur. Markmið til ársins 2030 verði skilgreind sem áfangamarkmið í átt að enn betri námsárangri.
- Hvatar til kennaranáms. Skoðaðir verði námsstyrkir og önnur úrræði til að fjölga kennurum með sérhæfingu í stærðfræði og raunvísindum og auðvelda sérfræðingum á þessum sviðum að afla sér kennsluréttinda.
- Lenging skólaársins. Tekið verði til alvarlegrar athugunar hvort lengja eigi skólaárið í grunn- og framhaldsskólum.
- Undirbúningur fyrir háskólanám. Metin verði áhrif styttingar náms til stúdentsprófs á undirbúning nemenda fyrir háskólanám í verkfræði, tæknifræði og raunvísindum.
- Stuðningur við Vísindaheima. Stjórnvöld styðji rausnarlega við uppbyggingu Vísindaheima Háskóla Íslands og efli þannig vísindamiðlun og áhuga barna og ungmenna á vísindum og tækni.
- Aðkoma fagfélaga. VFÍ verði haft með í ráðum við áframhaldandi mótun og innleiðingu aðgerða á sviði STEM-menntunar, sérstaklega við útfærslu viðmiðunarbrautar í STEM-greinum.
Umsögn VFÍ um þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030
Verkfræðingafélag Íslands vill taka þátt í stefnumótun, lagasetningu og ákvarðanatöku. Félagið er virkur umsagnaraðili um málefni er tengjast hagsmunum félagsmanna og samfélagsins í heild.
Á vef VFÍ eru birtar umsagnir frá árinu 2023. Eldri umsagnir má nálgast í Fagumræðunni.
Mynd: Verkfræðinemar - Team Spark á Degi verkfræðinnar.
