Verkfræðivarpið er sjálfstæð þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Verkfræðivarpið er hugarfóstur Hauks Inga Jónassonar, Helga Þórs Ingasonar og Þórðar Víkings Friðgeirssonar, en þeir eru allir kennarar og fræðimenn við verkfræðideild HR. Í þessari hlaðvarpsþáttaröð leitast þeir við að færa þekkingarsvið verkfræðinnar til almennings og verkfræðinga á mannamáli.
Í fyrsta þætti fara þeir m.a. yfir stöðu verkfræðinnar í samfélaginu, fjalla um 110 ára afmæli Verkfræðingafélags Íslands, sem fagnað er um þessar mundir, og ekki síst ráðstefnuna Innovation, Megaprojects and Risk (IMaR). IMaR er haldin í tengslum við Dag verkfræðinnar dagana 20.-21. október næstkomandi á Hotel Hilton Nordica.
Verkfræðivarpið er fastur liður í Fagumræðunni á vef VFÍ.
