Páll Jensson prófessor er einn af mikilvægustu fræðimönnum hérlendum í hópi verkfræðinga. Hann byggði upp kennslu og rannsóknir í iðnaðarverkfræði á Íslandi með félaga sínum Pétri heitum Maack prófessor, en þeir voru lykilmenn í Verkfræðideild Háskóla Íslands. Páll kom til HR 2011 og hefur komið ótrúlega miklu í verk í starfi sínu sem fræðimaður og kennari og mjög margir þekkja Pál sem afburðagóðan kennara. Í spjallinu ræddi Helgi Þór við Pál um iðnaðarverkfræði og aðgerðarannsóknir á Íslandi í áranna rás.
Um Verkfræðivarpið
Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þeir Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Friðgeirsson, sem eru allir kennarar og fræðmenn við verkfræðideild HR. Í þessari sjálfstæðu þáttaspyrpu innan HR hlaðvarpsins leitast þeir við að færa þekkingarsvið verkfræðinnar til almennings og verkfræðinga á mannamáli.
