Beint í efni
Hlaðvarp

Verk­fræði­varpið 35. þáttur - Ásdís Sig­urð­ar­dótt­ir gæða- og um­bóta­stjóri hjá Orkunni

Ásdís Sigurðardóttir vélaverkfræðingur ræðir m.a. mikilvægi leiðtogahæfni, samvinnu og sterkra teyma undir faglegri stjórnun.

Ásdís Sigurðardóttir í Verkfræðivarpinu.

Hlustið

Ásdís Sigurðardóttir er gæða- og umbótastjóri hjá Orkunni. Hún er vélaverkfræðingur með sérhæfingu í framleiðslu- og gæðastjórnun frá NTNU í Noregi. Ásdís hefur víðtæka starfsreynslu, meðal annars hefur hún starfað við mannvirkjagerð og við verkfræðiráðgjöf, bæði á Íslandi og í Noregi. Einnig hefur hún átt farsælan íþróttaferil sem handknattleikskona, hún var um tíma í íslenska landsliðinu og hefur leikið með félagsliðum bæði hérlendis og erlendis. Sú reynsla hefur mótað sýn hennar á mikilvægi leiðtogahæfni, samvinnu og sterkra teyma – þætti sem eru samofnir faglegri stjórnun.

Ásdís situr í stjórn Kjaradeildar VFÍ.

Um Verkfræðivarpið
Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þeir Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Friðgeirsson, sem eru allir kennarar og fræðmenn við verkfræðideild HR. Í þessari sjálfstæðu þáttaspyrpu innan HR hlaðvarpsins leitast þeir við að færa þekkingarsvið verkfræðinnar til almennings og verkfræðinga á mannamáli.