Sveinn V. Ólafsson er vélaverkfræðingur með langa og fjölbreytta starfsreynslu. Hann starfar sem sjálfstæður ráðgjafi og fyrirlesari á sviði gæðastjórnunar. Hann lauk meistaraprófi (MSc) í flug- og kerfisverkfræði við Virginia Tech í Bandaríkjunum og hefur komið víða við á starfsferli sínum og m.a. unnið fyrir fyrirtæki og stofnanir sem tengjast flugrekstri - þar sem mikil áhersla er lögð á notkun staðla og gæðastjórnun. Sveinn hefur einnig unnið að þróun ISO 9001 gæðastaðalsins fyrir Íslands hönd og veit því af eigin reynslu hvernig staðið er að þróun alþjóðlegra staðla.
Um Verkfræðivarpið
Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þeir Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Friðgeirsson, sem eru allir kennarar og fræðmenn við verkfræðideild HR. Í þessari sjálfstæðu þáttaspyrpu innan HR hlaðvarpsins leitast þeir við að færa þekkingarsvið verkfræðinnar til almennings og verkfræðinga á mannamáli.
