Beint í efni
Hlaðvarp

Verk­fræði­varpið 37. þáttur. - Kol­efn­is­spor Krón­unnar

Hópur verkfræðinema í HR sem vann til verðlauna SIF SIF (Sustainability Institute and Forum).

Nærmynd af fossi og klettum.

Hlusta

Rætt var við hóp verkfræðinemenda sem vann nemendaverðlaun SIF - Rannsóknaseturs í sjálfbærni haustið 2025. Verðlaunin voru veitt fyrir verkefni sem hópurinn vann í sjálfbærninámskeiði undir handleiðslu Dr. David Finger. Í námskeiðinu er nemendum gert að takast á við raunveruleg vandamál í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, með áherslu á sköpunargáfu, kerfishugsun og slagkraft.

Verðlaunaverkenfið nefnist Kolefnisfótspor Krónunnar og hópurinn samanstendur af þeim Andra Ísak, Fróða, Kjartani, Kristjáni Helga, Sigmari  og Sindra Degi. Teymið lagði til kolefnismerkingarkerfi fyrir matvörur sem miðar að því að leiðbeina neytendum að umhverfisvænni valkostum.

Um Verkfræðivarpið
Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þeir Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Friðgeirsson, sem eru allir kennarar og fræðmenn við verkfræðideild HR. Í þessari sjálfstæðu þáttaspyrpu innan HR hlaðvarpsins leitast þeir við að færa þekkingarsvið verkfræðinnar til almennings og verkfræðinga á mannamáli.