Beint í efni
Hlaðvarp

Verk­fræði­varpið 38. þáttur - Verk­efna­stjórn­un og MPM námið

Guðmundur Pálsson fjölmiðlamaður og tónlistarmaður segir frá reynslu sinni af verkefnastjórnun og MPM náminu.

Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og Guðmundur Pálsson

Hlusta

Guðmundur Pálsson er fjölmiðlamaður og tónlistarmaður með fjölbreyttan bakgrunn. Hann er BA í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands og starfaði meðal annars hjá Hafrannsóknarstofnun og Íslenskri erfðagreiningu áður en hann sneri sér að fjölmiðlum. Margir þekkja rödd hans eftir áralangan feril hjá RÚV, þar sem hann hefur komið að dagskrárgerð á Rás 1 og Rás 2 sem og í sjónvarpi. Guðmundur er jafnframt einn af stofnendum og lykilmaður í hinum landsþekkta fjöllistahópi Baggalúti, sem hefur sett mikinn svip á íslenskt menningarlíf. Í Verkfræðivarpinu ræðir hann kynni sín af verkefnastjórnun, leið sína í MPM námið sem hann lauk nýverið, og reynslu sína af alþjóðlegri C-vottun í verkefnastjórnun.“

Um Verkfræðivarpið
Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þeir Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Friðgeirsson, sem eru allir kennarar og fræðimenn við verkfræðideild HR. Í þessari sjálfstæðu þáttaspyrpu innan HR hlaðvarpsins leitast þeir við að færa þekkingarsvið verkfræðinnar til almennings og verkfræðinga á mannamáli.

Verkfræðivarpið er fastur liður í Fagumræðunni á vef VFÍ.