Beint í efni
Grein

Verk­fræði­varpið 39. þáttur - Gervi­greind sem einka­kenn­ari

Hinrik Jósafat Atlason stofnandi og framkvæmdastjóri Atlas Primer.

Verkfræðivarpið 39. þáttur

Hlusta

Hinrik Jósafat Atlason er stofnandi og framkvæmdastjóri Atlas Primer og hefur unnið að þróun gervigreindarlausna síðan árið 2005. Árið 2018 þróaði hann gervigreindareinkakennara sem hjálpar fólki að læra í gegnum talviðmót. Í dag leiðir hann alþjóðlega uppbyggingu Atlas Primer á þremur heimsálfum, en fyrirtækið hefur verið til umfjöllunar í Forbes og hlotið viðurkenningu frá TIME og Statista sem eitt af fremstu EdTech fyrirtækjum heims.

Um Verkfræðivarpið
Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þeir Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Friðgeirsson, sem eru allir kennarar og fræðimenn við verkfræðideild HR. Í þessari sjálfstæðu þáttaspyrpu innan HR hlaðvarpsins leitast þeir við að færa þekkingarsvið verkfræðinnar til almennings og verkfræðinga á mannamáli.

Verkfræðivarpið er fastur liður í Fagumræðunni á vef VFÍ.