Beint í efni
Hlaðvarp

Verk­fræði­varpið 42. þáttur - Spuna­greind

Andri Snær Ásmundsson doktorsnemi við Verkfræðideild HR segir frá möguleikum tengdum spunagreind.

Teiknuð mynd af mannshöfði og tölvurásum.
Helgi Þór Ingason, Atli Snær Ásmundsson, Þórður Víkingur Friðgeirsson

Hlusta

Atli Snær segir frá doktorsverkefninu sínu sem gæti valdið straumhvörfum þegar kemur að kennslu og stjórnendaþjálfun.

Hugmyndin er að nýta gervigreind til að lesa í tilfinningar nemenda og aðlaga kennsluna að þörfum hvers og eins. Allir nemendur eru sérstakir og allir nemendur tileinka sér þekkingu með ólíkum hætti. Persónumiðað nám (e. personalized learning) gefur tækifæri til að vinna með styrkleika og þarfir hvers einstaks nemanda og hámarka þannig árangurinn af náminu auk margvíslegra annarra kosta s.s. kostnaðarlækkunar og að leggja til sjálfbærnimarkmiða samfélagsins.

Atli Snær er með bakgrunn í málvísindum og tölvunarfræði auk þess að leggja stund á tónlistarsköpun.

Um Verkfræðivarpið
Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þeir Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Friðgeirsson, sem eru allir kennarar og fræðimenn við Verkfræðideild HR. Í þessari sjálfstæðu þáttaspyrpu innan HR hlaðvarpsins leitast þeir við að færa þekkingarsvið verkfræðinnar til almennings og verkfræðinga á mannamáli.

Verkfræðivarpið er fastur liður í Fagumræðunni á vef VFÍ.