Í þessum þætti Verkfræðivarpsins er rætt við Sveinbjörn Jónsson, verkefnisstjóra hjá ÍAV, um nýju farþegamiðstöðina Vör við Skarfabakka í Reykjavík, sem afhent var Faxaflóahöfnum í mars 2026.
Sveinbjörn er byggingarverkfræðingur með MSc-gráðu frá Háskóla Íslands og MPM-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.
Hluti þáttarins var tekinn upp í mannvirkinu sjálfu, en í meginviðtalinu ræða Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Sveinbjörn um verkefnið, áskoranir í framkvæmdinni, samstarf ólíkra aðila og það sem þarf til að leiða stór og flókin innviðaverkefni til farsællar niðurstöðu.
Um Verkfræðivarpið
Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þeir Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Friðgeirsson, sem eru allir kennarar og fræðimenn við Verkfræðideild HR. Í þessari sjálfstæðu þáttaspyrpu innan HR hlaðvarpsins leitast þeir við að færa þekkingarsvið verkfræðinnar til almennings og verkfræðinga á mannamáli.
Verkfræðivarpið er fastur liður í Fagumræðunni á vef VFÍ.
