Beint í efni
Hlaðvarp

Verk­fræði­varpið 44. þáttur - Sjálf­bærni

Dr. David Finger dósent við Verkfræðideild HR ræðir um sjálfbærni og hvers vegna hún skiptir máli.

Vekjaraklukka eins og jörðin með grænum laufum.

Hlusta

Í þessum þætti Verkfræðivarpsins ræða Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur við David Christian Finger, dósent við Verkfræðideild Háskólans í Reykjavík.

David er vísindamaður, kennari og ráðgjafi með doktorspróf í náttúruvísindum frá ETH Zürich í Sviss og hefur gegnt fjölmörgum alþjóðlegum trúnaðarstörfum, meðal annars sem varaforseti International Ecological Engineering Society.

Rannsóknir hans hafa einkum beinst að sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda, vatnsauðlindum og vistkerfum fjallasvæða.

Í þættinum ræðum við sjálfbærni, hvers vegna hún skiptir máli fyrir samfélagið og atvinnulífið, og hvernig þessar áskoranir hafa áhrif á menntun og þjálfun verkfræðinga framtíðarinnar.

Um Verkfræðivarpið
Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þeir Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Friðgeirsson, sem eru allir kennarar og fræðimenn við Verkfræðideild HR. Í þessari sjálfstæðu þáttaspyrpu innan HR hlaðvarpsins leitast þeir við að færa þekkingarsvið verkfræðinnar til almennings og verkfræðinga á mannamáli.

Verkfræðivarpið er fastur liður í Fagumræðunni á vef VFÍ.