Helgi Þór Ingason og Haukur Ingi Jónasson ræddu við við Martin Drews, prófessor í loftslagsáhættustjórnun við Danska tækniháskólann (DTU), um hvernig samfélög og mikilvægir innviðir geta aðlagast loftslagsbreytingum og aukinni óvissu. Martin var gestur Sjálfbærniseturs HR (SIF) og Verkfræðingafélagsins á Degi sjálfbærni við HR þann 9. september.
Um Verkfræðivarpið
Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þeir Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Friðgeirsson, sem eru allir kennarar og fræðimenn við Verkfræðideild HR. Í þessari sjálfstæðu þáttaspyrpu innan HR hlaðvarpsins leitast þeir við að færa þekkingarsvið verkfræðinnar til almennings og verkfræðinga á mannamáli.
Verkfræðivarpið er fastur liður í Fagumræðunni á vef VFÍ.
